Fótbolti

Kemur Ís­lendingnum unga til varnar

Aron Guðmundsson skrifar
Viktor Bjarki Daðason, leikmaður FC Kaupmannahafnar
Viktor Bjarki Daðason, leikmaður FC Kaupmannahafnar Getty/Kristian Tuxen Ladegaard

Þjálfari FC Kaupmannahafnar kemur Viktori Bjarka Daðasyni, 18 ára ungstirni liðsins, til varnar en hann hefur átt erfitt uppdráttar innan vallar upp á síðkastið.

Bo Svensson er þjálfari FC Kaupmannahafnar en eftir að hafa skotist fram á sjónarsviðið aðeins sautján ára gamall á síðasta tímabili og heillað í Meistaradeild Evrópu hefur Viktor Bjarki lent í smá mótvindi núna.

Kappinn er aðeins átján ára gamall og kominn virkilega langt á sínum ferli þrátt fyrir ungan aldur. Svensson segir að hafa verði það í huga.

„Því fylgir mikil pressa að spila sem nýliði fyrir FC Kaupmannahöfn og því hefur Viktor Bjarki fundið fyrir ungur að árum. Hann er klár strákur, algjör liðsmaður,“ sagði Svensson um lærisvein sinn í samtali við Bold.

Viktor Bjarki geti stundum tekið hluti of mikið inn á sig.

„Ef hann klúðrar færi þá finnst honum að hann hafi brugðist liðinu. Hann hefur ekki brugðist neinum.“

Metnaður félags á borð við FC Kaupmannahöfn felist í því að vinna titla og gera vel í Evrópu sem og að þróa unga leikmenn.

„Þess vegna er það náttúrulegt fyrir okkur að styðja við okkar ungu leikmenn og rífa þá upp, sýna okkar trú á þeirra hæfileikum.“

Viktor Bjarki hefur skorað tólf mörk fyrir aðallið FC Kaupmannahafnar. Tvö þeirra hafa komið á yfirstandandi tímabili, eitt í dönsku úrvalsdeildinni og annað í danska bikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×