Grálúsugir laxar
Um milljón lúsugum löxum hefur verið slátrað eða þeir drepist í sjókvíum í Tálknafirði. Talsmaður náttúruverndarsamtaka segir útilokað annað en að fiskarnir þjáðist miðað við núverandi rekstrarfyrirkomulag. Hann kallar stjórnendur fyrirtækjanna glæpamenn.