220 metra mastur var fellt á Austurlandi
Tvö hundruð og tuttugu metra hátt mastur á Eiðum á Austurlandi var fellt í hádeginu. Þessar einstöku myndir náðust þegar mastrið var fellt en um var að ræða langbylgjumastur Ríkisútvarpsins á Eiðum. Það var þriðja hæsta mannvirki landsins á eftir tveimur öðrum útvarpsmöstrum.