Húsnæði á Íslandi almennt verulega vantryggt fyrir bruna
Húsnæði á Íslandi er almennt verulega vantryggt fyrir bruna og allt of margir láta hjá líða að uppfæra brunabótamat á eignum sínum. Dæmi eru um að fólk sitji eftir með sárt ennið og fái litlar sem engar bætur eftir eldsvoða.