Boardwalk Empire
Boardwalk Empire gerast í Atlantic City í kringum 1920 við upphaf bannáranna í Bandaríkjunum. Wall Street var á mikilli uppleið en mörg glæpagengi spruttu fram og græðgin og hömluleysið var allsráðandi. Þættirnir hefja göngu sína á Stöð 2 20. febrúar.
Boardwalk Empire hlaut Golden Globe verðlaunin 2011 sem besta dramaþáttaröðin og Steve Buscemi var útnefndur besti aðalleikari í dramaþætti fyrir túlkun sína á hinum gerspillta pólitíkusi og glæpaforingjanum Nucky Johnson.
Martin Scorsese leikstýrði fyrsta þættinum og öll þáttaröðin er unnin í miklu samstarfi við hann. Scorsese er jafnframt framleiðandi ásamt Mark Walhberg o.fl. Handritið skrifar Emmy-verðlaunahafinn Terence Winter, höfundur The Sopranos.