Vonsvikin með HSÍ
Hafdís Renötudóttir, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals og landsliðskona í handbolta er gríðarlega vonsvikin með niðurstöðu HSÍ í máli er sneri að fordómum í hennar garð í úrslitaeinvígi efstu deildar sökum kynhneigðar hennar. Málið tók sinn toll á Hafdísi sem þurfti að grafa djúpt í leit að styrk.