Þrumuskotið sem Val á toppinn, endurkoma Víkinga og öll hin mörkin Það vantaði ekki mörkin í fimmtándu umferð Bestu deildar kvenna en það voru skoruð nítján mörk í leikjunum fimm. Nú má sjá þau öll hér inn á Vísi. Íslenski boltinn 1. ágúst 2024 09:30
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 1-0 | Meistararnir unnu toppslaginn Katie Cousins skoraði eina mark leiksins þegar Valur vann Breiðablik, 1-0, í uppgjöri efstu liða Bestu deildar kvenna. Með sigrinum komust Valskonur á topp deildarinnar. Íslenski boltinn 31. júlí 2024 20:30
Risarnir mætast í kvöld: „Svona leikir skipta alveg gríðarlega miklu máli“ Valur tekur á móti Breiðabliki í uppgjöri toppliða Bestu deildar kvenna á N1 vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Liðin eru jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins og lítið eftir af hinni hefðbundnu deildarkeppni. Ástu Eir Árnadóttur, fyrirliða Breiðabliks, lýst vel á viðureign liðanna í kvöld. Þetta séu leikirnir sem geri allt erfiðið þess virði. Íslenski boltinn 31. júlí 2024 13:00
Uppgjörið: Drita - Breiðablik 1-0 | Evrópusumarið á enda runnið Breiðablik er fallið úr keppni í Sambandsdeild Evrópu þetta sumarið. Liðið þurfti að þola 1-0 tap fyrir liði Drita í Kósóvó. Fótbolti 30. júlí 2024 16:55
Heldur kyrru fyrir í Kópavogi Færeyski framherjinn Patrik Johannesen verður áfram leikmaður Breiðabliks þrátt fyrir fréttir þess efnis að hann væri á förum frá félaginu. Íslenski boltinn 29. júlí 2024 19:31
Tanja tekur við af Eysteini Pétri Breiðablik hefur ráðið Tönju Tómasdóttur í starf framkvæmdastjóra félagsins. Íslenski boltinn 29. júlí 2024 09:15
FH að festa kaup á færeyska framherjanum Patrik Patrik Johannesen er við það að ganga í raðir FH en þessi færeyski landsliðsmaður er í dag leikmaður Breiðabliks í Bestu deild karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 28. júlí 2024 11:15
„Það er erfitt að brjóta okkur niður“ Ásta Eir Árnadóttir, leikmaður Breiðabliks, skoraði eina mark leiksins þegar liðið sigraði Fylki á heimavelli í 14. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Þrátt fyrir sigur fannst Ástu frammistaðan ekki upp á marga fiska. Íslenski boltinn 26. júlí 2024 21:30
Uppgjörið: Breiðablik - Fylkir 1-0 | Blikar aftur á toppinn Breiðablik tók á móti Fylki á Kópavogsvelli í kvöld í 14. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Blika en Ásta Eir Árnadóttir skoraði eina mark leiksins í upphafi hans. Íslenski boltinn 26. júlí 2024 17:16
Sjáðu mörkin úr leikjum íslensku liðanna í Sambandsdeildinni Fjórir leikir fóru fram hér á landi í undankeppni Sambandsdeildarinnar í gær. Stjarnan var eina liðið sem vann sinn leik, Breiðablik og Víkingur töpuðu en Valur gerði markalaust jafntefli. Öll mörkin úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan. Fótbolti 26. júlí 2024 09:01
„Frammistaðan veitir von fyrir seinni leikinn“ Höskuldur Gunnlaugsson átti góðan leik inni á miðsvæðinu þegar Breiðablik laut í lægra haldi fyrir Drita í fyrri leik liðanna í annarri umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla á Kópavogsvelli í kvöld. Fyrirliðinn er vongóður um að Blikar nái að komast áfram þrátt fyrir 2-1 tap. Fótbolti 25. júlí 2024 22:12
Kristófer Ingi ekki með Blikum sökum handvammar Kristófer Ingi Kristinsson, leikmaður Breiðabliks, situr uppi í stúku og fylgist með leik Breiðabliks og Drita þessa stundina en hann átti að vera á varamannabekknum í kvöld. Fótbolti 25. júlí 2024 20:05
Blikar renna blint í sjóinn: „Klárir í hvoru tveggja“ Breiðablik mætir sterku kósóvsku liði Drita í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Sambansdeildar Evrópu á Kópavogsvelli í kvöld. Halldór Árnason, þjálfari Blika, segir menn spennta fyrir verkefninu. Fótbolti 25. júlí 2024 15:01
Evrópuveisla á Stöð 2 Sport í kvöld Óhætt er að segja að framundan sé spennandi Evrópukvöld hér landi. Fjögur Bestu deildar lið verða í eldlínunni í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu, leikir sem verða allir sýndir í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2. Fótbolti 25. júlí 2024 09:42
„Hér stígum við fast á bensíngjöfina og höldum henni í botni í níutíu mínútur plús“ Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir að Kópavogsliðið ætli ekki að vera með neitt hálfkák í leiknum gegn Drita frá Kósóvó í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun. Fótbolti 24. júlí 2024 22:30
Áslaug Munda ekki meira með Blikum í sumar Hin fjölhæfa Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Breiðablik á þessari leiktíð. Íslenski boltinn 23. júlí 2024 19:15
Vildu rautt á tæklingu Sharts: „Þetta er hættulegt“ Tækling Hönnuh Sharts, varnarmanns Stjörnunnar, á Barbáru Sól Gísladóttur í leik Garðbæinga við Breiðablik, var til umræðu í Bestu mörkunum. Sharts fékk gult spjald fyrir en annar litur hefði getað verið á spjaldinu. Íslenski boltinn 22. júlí 2024 14:30
Víkingar og Blikar heppnari en Valsmenn og Stjörnumenn Í dag kom í ljós hvaða lið bíða íslensku félaganna fjögurra takist þeim að komast áfram úr annarri umferð Sambandsdeildar karla í fótbolta. Fótbolti 22. júlí 2024 13:21
Mörkin úr Bestu: Blikar röðuðu inn hjá KR og var hann kominn inn hjá Emil? Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjá mörkin úr leikjunum tveimur hér inn á Vísi. Íslenski boltinn 22. júlí 2024 09:02
Sýður á Elmari: „Þetta er súrrealískt“ Theódór Elmar Bjarnason, fyrirliði KR, var eðlilega óánægður eftir 4-2 tap liðsins fyrir Breiðabliki í Bestu deild karla á Kópavogsvelli í kvöld. Grafalvarleg staða er uppi í Vesturbæ. Íslenski boltinn 21. júlí 2024 21:25
Uppgjörið: Breiðablik - KR 4-2 | Vesældarlegir Vesturbæingar Breiðablik vann 4-2 sigur á KR á Kópavogsvelli í kvöld. Kópavogsbúar eru þá þremur stigum frá toppliði Víkings í Bestu deild karla. KR er þremur stigum frá botni deildarinnar. Íslenski boltinn 21. júlí 2024 21:10
Davíð aftur í Blika Davíð Ingvarsson stoppaði stutt í Danaveldi og er snúinn aftur í raðir Breiðabliks. Á hann að hjálpa liðinu í baráttunni í Bestu deild karla í fótbolta sem og Evrópubaráttu Blika en liðið er komið í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Íslenski boltinn 20. júlí 2024 19:31
„Andstyggilegt og reynir bara að strauja hana“ Nik Chamberlain var létt eftir 1-0 sigur Breiðabliks á Stjörnunni í Garðabæ í dag. Breiðablik heldur toppsæti deildarinnar eftir sigurinn. Íslenski boltinn 20. júlí 2024 16:55
Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 0-1 | Heimakonur rændar stigi Breiðablik vann 1-0 útisigur á Stjörnunni í Bestu deild kvenna síðdegis. Það sem virtist löglegt jöfnunarmark var dæmt af heimakonum undir lok leiks í Garðabæ. Íslenski boltinn 20. júlí 2024 16:15
Sjáðu geggjaða stoðsendingu Gylfa: „Eruð þið að grínast?“ Valsmenn fóru mikinn í Albaníu í gærkvöld er þeir rassskelltu lið Vllaznia til að tryggja sæti sitt í næstu umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 19. júlí 2024 11:22
Blásið til Evrópuveislu á Íslandi Öll þrjú íslensku félögin sem kepptu í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld fóru áfram í næstu umferð forkeppninnar. Nú stefnir í heljarinnar Evrópuveislu hér á landi í næstu viku. Fótbolti 19. júlí 2024 10:31
„Ég bara er ekki viss, veit ekki hvort boltinn fór af mér eða honum“ „Þetta er helvíti sætt, erfitt að missa þetta niður í fyrri leiknum en við sýndum karakter í dag og kláruðum þetta,“ sagði Kristófer Ingi Kristinsson, hetja Breiðabliks í 3-1 sigri gegn Tikvesh. Kristófer var reyndar ekki klár á því hvort hann hefði skorað sjálfur en það tókst að sannfæra hann. Fótbolti 18. júlí 2024 21:39
Uppgjörið: Breiðablik - Tikvesh 3-1 | Blikar áfram eftir að lenda undir Breiðablik er komið áfram í aðra umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar eftir góðan 3-1 sigur á Tikvesh frá Norður-Makedóníu á Kópavogsvelli í kvöld. Liðið þurfti að hafa fyrir hlutunum þar sem það tapaði ytra 3-2 í síðustu viku. Fótbolti 18. júlí 2024 21:10
„Hefði viljað sjá menn aðeins þroskaðri“ „Sóknarlega þorðum við að halda í boltann, þorðum að spila á milli línanna og fara í svæðin sem þeir skildu eftir sig,“ segir Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, um góða byrjun liðsins í fyrri leiknum gegn Tikvesh frá Makedóníu. Blikar komust í 2-0 en misstu leikinn niður í 3-2 tap. Fótbolti 18. júlí 2024 14:31
„Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir Blika klára í bátana fyrir leik kvöldsins í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar komust 2-0 yfir ytra gegn Tikvesh frá Makedóníu en misstu leikinn niður í 3-2 tap. Fótbolti 17. júlí 2024 23:30