Innrás Rússa í Úkraínu

Innrás Rússa í Úkraínu

Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Fréttamynd

Rúss­neskur drónasmiður á gjör­gæslu vegna bílsprengju

Stjórnandi verksmiðju sem framleiðir sjálfsprengidróna fyrir rússneska herinn er sagður alvarlega særður eftir að bíll hans sprakk í loft upp í Úralfjöllunum í gær. Vladimir Tkachuk var fluttur á sjúkrahús og ku vera í alvarlegu ástandi á gjörgæslu en lífvörður hans er látinn.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Al­gjör­lega varnar­lausir gegn skotflaugum Rússa

Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar.

Erlent
Fréttamynd

„Við munum ná mark­miðum okkar“

Vladimír Pútín lýsti því yfir í gær að útgjöld til varnarmála ættu að vera í forgangi í Rússlandi næstu þrjú árin, hið minnsta. Í ávarpi forsetans á Dúmunni, þingi Rússlands, sagði hann nýja heimsmynd vera að myndast og bölsóttaðist út í Vesturlönd fyrir að reyna að einangra Rússland.

Erlent
Fréttamynd

Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu?

Vólódímír Selenskí rak í gær yfirherforingja Úkraínu og skipaði nýjan. Það gerði hann í kjölfar umfangsmikilla mótmæla eftir að hann rak varnarmálaráðherra landsins. Forsetinn segir frekari breytingar í vændum á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Fundar með fjölda her­foringja í skugga mót­mæla

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur á undanförnum dögum fundað með mörgum af helstu herforingjum úkraínska hersins. Forsetinn er sagður leita að arftaka Oleksanders Sirskí, formanns herforingjaráðs Úkraínu. Mikil mótmæli hafa átt sér stað í Úkraínu eftir að Selenskí lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedóróv taka pokann sinn í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir Úkraínu­manna mót­mæla hrókeringum Selenskís

Þúsundir Úkraínumanna hafa í dag mótmælt í borgum víða í heimalandinu í kjölfar þess að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov óvænt taka pokann sinn í gær. Fedorov hafði verið ráðherra í hálft ár og ekki liggur fyrir hvers vegna hann var látinn fara.

Innlent
Fréttamynd

Pútín lætur Rúss­land brenna

Með linnulausum drónaárásum Úkraínumanna, ört vaxandi verðbólgu og eldsneytisskorti greiðir Rússland sífellt hærra verð fyrir stríðið sem Vladimír Pútín kaus að hefja. Stríðið er hins vegar orðið sjálfur kjarninn í stjórnkerfi Pútíns. Því verður engin leið að varanlegum friði nema með róttækum pólitískum breytingum í Rússlandi.

Umræðan
Fréttamynd

Krist­rún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. 

Innlent
Fréttamynd

NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu

Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. 

Innlent