Rússland

Rússland

Höfuðborg: Moskva. Mannfjöldi: 146,0 milljónir (2025). Flatarmál: 17.098.246 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Rússar gerðu á­rás á sjúkra­hús í Kharkív

Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árás Rússa á sjúkrahús í Kharkív í nótt. Flytja þurfti yfir tvö hundruð sjúklinga á önnur sjúkrahús en samkvæmt ríkissaksóknara Úkraínu var árásin gerð á gang sem tengir saman byggingar sjúkrahússins.

Erlent
Fréttamynd

Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum

Bandarískir erindrekar og embættismenn hafa lagt til að Evrópa hefji á nýjan leik að kaupa jarðgas frá Rússlandi. Gasið verði flutt gegnum úkraínskar leiðslur og keypt af bandarískum milliliðum til að komast hjá refsiaðgerðum Evrópuríkja. Ráðamenn í Evrópu hafa tekið illa í þessa hugmynd, sem þeir Steve Witkoff og Jared Kushner hafa verið að stinga upp á á undanförnum vikum.

Erlent
Fréttamynd

Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns

Þegar þeir Alexander Stubb, forseti Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hringdu í Vladimír Pútín Rússlandsforseta á dögunum, stóð til að símtalið myndi taka um tuttugu mínútur. Þess í stað stóð það yfir í rúmar níutíu mínútur og kom mögulegt vopnahlé í Úkraínu varla til umræðu.

Erlent
Fréttamynd

Efins um „einka­fram­tak Norð­manna og Finna“

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segist efins um nytsemi símtals starfsbræðra hennar í Noregi og í Finnlandi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti segist þakklátur stuðningi Norðmanna og Finna í stríðinu, hann hafi verið upplýstur um efnislegt innihald samtalsins. Pútín er sagður hafa kennt stefnu NATO og ESB um lengd stríðsins.

Erlent
Fréttamynd

Stubb og Støre ræddu við Pútín

Forseti Finnlands Alexander Stubb og forsætisráðherra Noregs Jonas Gahr Støre ræddu símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Þeir segja samtalið hafa verið hreinskiptið og viðamikið þar sem þeir hafi gagnrýnt framferði Rússa í Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Musk segi ó­satt um Starlink

Serhii Sternenko, ráðgjafi úkraínska varnarmálaráðuneytisins, hafnar fullyrðingum Elons Musk um að Úkraínumenn hafi brotið gegn notkunarskilmálum Starlink með því að nota kerfið við drónaárásir.

Erlent
Fréttamynd

Geta notað drónana til fulls á ný

Tenging úkraínskra hermanna við Starlink-tæknina er aftur orðin stöðug  samkvæmt varnarmálaráðherra landsins. Herinn hafði takmarkaða tengingu við tæknina í nokkra daga en hermenn reiða sig mikið á hana í hernaði gegn Rússum.

Erlent
Fréttamynd

Vopnakapphlaup á Kóreu­skaga

Aukið samstarf Rússlands, Kína, Íran og Norður-Kóreu hefur reynst ríkjunum vel en kannski sérstaklega Norður-Kóreu. Her ríkisins hefur fengið fjölda nýrra vopna á undanförnum árum og hafa forsvarsmenn hans lært af reynslu Rússa í Úkraínu. Ákveðið vopnakapphlaup á sér nú stað á Kóreuskaga þar sem spennan þykir mjög mikil þessa dagana.

Erlent
Fréttamynd

Segist hafa tryggt stað­bundið vopna­hlé

Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, er sögð hafa tryggt staðbundið mannúðarvopnahlé í Úkraínu. Vopnahlé þetta er bundið við bæinn Oleshky í Kherson-héraði, suður af Dnípróá. Þaðan hafa um nokkuð skeið borist fregnir af hræðilegum aðbúnaði íbúa og harðræði sem þeir eru beittir af Rússum.

Erlent
Fréttamynd

Enn einu skipinu sökkt á Svarta­hafi

Björgunaraðgerð stendur nú yfir undan ströndum Rúmeníu þar sem flutningaskip er á hvolfi og marar í hálfu kafi eftir að eldur kviknaði þar um borð. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað eftir að skipinu hvolfdi en yfirvöld í Rúmeníu segja skipinu hafa verið sökkt með rússneskum dróna.

Erlent
Fréttamynd

Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð

Rússar skutu mörgum skotflaugum og flugu fjölda sjálfsprengidróna að Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu í gærkvöldi og í nótt. Að minnsta kosti 21 skotflaug lenti í höfuðborginni í þremur mismunandi bylgjum en samkvæmt Úkraínumönnum bar allavega ein þeirra klasasprengjur, sem hannaðar eru til að dreifa tugum smærri sprengja yfir stórt svæði.

Erlent
Fréttamynd

Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns

Pavel Prígósjín, sonur rússneska auðjöfursins Jevgení Prígósjín, tók við stjórn málaliðahópsins Wagner þegar faðir hans dó í háloftunum yfir Rússlandi í ágúst 2023. Þá var hann einungis 25 ára gamall og stjórnaði nokkuð stóru veldi málaliða, gullsmyglara, fíkniefnasala og bruggara.

Erlent
Fréttamynd

„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“

Ráðgjafi Vladimírs Pútín segir að Rússar séu tilbúnir til þríhliða viðræðna milli Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa mótmælt ummælum erindreka Donalds Trump um að Pútín sé mannvinur.

Erlent
Fréttamynd

Björguðu særðum her­manni með dróna

Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott.

Erlent
Fréttamynd

Full­trúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín

Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum.

Erlent
Fréttamynd

Meintir njósnarar hand­teknir í Dan­mörku

Tveir ungir menn í Álaborg í Danmörku hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að njósna um danskt varnarmálafyrirtæki í þágu rússneskra stjórnvalda. Lögregla leitar enn að þriðja manninum.

Erlent
Fréttamynd

Vill funda með Trump og Xi um ör­lög Úkraínu

Vladimír Pútín hefur lagt til við Donald Trump að þeir og Xi Jinping komi saman í næsta mánuði og ræði hvernig binda eigi enda á stríðið í Úkraínu. Pútín er sagður vilja nýta bætt samband sitt og Trumps og versnandi samband Trumps og Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu. Þessar vendingar hafa leitt til mikilla áhyggja í Evrópu og í Úkraínu, sem munu ekki eiga fulltrúa á fundinum, verði af honum.

Erlent
Fréttamynd

Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið

Bandaríkjaforseti segir að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn og að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið þá frá samningaborðinu.

Erlent