Þýskaland

Þýskaland

Höfuðborg: Berlín. Mannfjöldi: 84,4 milljónir (2025). Flatarmál: 357.592 ferkílómetrar.


Fréttamynd

„Fag­menn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig

Úkraínska fragtflugvélin sem sjálfsprengidróni fannst við hliðina á á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gær, var hlaðin skotfærum sem höfðu verið flutt frá Frakklandi og talið er að átti að flytja áfram til Úkraínu. Sprengiefnið sem dróninn bar ku vera öflugt og er notað í hernaði en hvelletan mun hafa verið gölluð.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sjálfsprengidróni fannst á flug­velli í Þýska­landi

Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gærkvöldi, við hlið úkraínskrar fraktflugvélar. Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að sprengjusérfræðingar hafi staðfest að dróninn hafi borið sprengju en hann er sagður hafa verið gallaður.

Erlent
Fréttamynd

Al­gjör­lega varnar­lausir gegn skotflaugum Rússa

Rússar skutu 24 skotflaugum, fjórum annars konar eldflaugum og 115 sjálfsprengidrónum að Kænugarði og úthverfum borgarinnar í nótt. Úkraínumenn segjast hafa skotið 98 dróna niður en ekki einustu eldflaug en að minnsta kosti sautján létu lífið í árásinni og tugir eru særðir. Úkraínumenn virðast búnir með flugskeyti sín í einu loftvarnarkerfin sem þeir eiga sem geta verið notuð til að skjóta niður rússneskar skotflaugar.

Erlent
Fréttamynd

Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Ber­lín

Minnst einn lést og 14 særðust alvarlega í hátíðarhöldum hinsegin daga í Berlín, að sögn lögreglu þar í borg. Grunur er um að sendiferðabíl hafi verið ekið á mannfjölda í Tiergarten-garðinum í vesturhluta miðborgar Berlínar.

Erlent
Fréttamynd

Kenningin um útskiptin miklu sem um­breytti vest­rænum stjórn­málum

Vesturlönd hafa gengið í gegnum pólitíska umbrotatíð frá aldamótum. Samspil efnahagslegra og samfélagslegra áfalla hefur skapað frjóan jarðveg fyrir þjóðernispopúlisma þar sem samsæriskenningar á borð við um „útskiptin miklu“ hafa færst úr afkimum internetsins og inn í hjarta stjórnmálanna.

Lífið
Fréttamynd

Segir Klopp taka við þýska lands­liðinu

Jurgen Klopp hefur verið ráðinn sem þjálfari þýska landsliðsins samkvæmt félagsskiptafréttamanninum Fabrizio Romano. Julian Nagelsmann var gert að hætta sem þjálfari þýska landsliðsins eftir slæmt gengi á heimsmeistaramótinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Þýska lands­liðið spegli land stöðnunar

Þýskaland er úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Fallið er stórt áfall fyrir fjórfalda heimsmeistara en í Þýskalandi hefur umræðan ekki aðeins snúist um vítaspyrnur, leikskipulag eða framtíð Julian Nagelsmann. Sumir þýskir miðlar hafa gert ósigurinn að stærri spurningu: hvort landsliðið endurspegli ástand lands sem glímir við stöðnun, slitna innviði og þrýsting á gamla efnahagsmódelið.

Erlent
Fréttamynd

Sjö­tti lést af sárum sínum á sjúkra­húsi

Fjórar konur og tveir menn voru skotin til bana á heimili fyrir börn og mæður í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. 45 ára karlmaður er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn en hann átti í forræðisdeilu.

Erlent
Fréttamynd

Fimm sagðir látnir í skot­á­rás nærri Ham­borg

Byssumaður er sagður hafa skotið fimm manns til bana og sært fleiri við æskulýðsmiðstöð í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Lögregla segir að tveir séu í haldi, þar á meðal sá sem er grunaður um að hafa skotið fólkið.

Erlent
Fréttamynd

41,5 gráður í Þýska­landi og hita­met slegið

Hitinn fór upp í 41,5 gráður í Þýskalandi í dag og er það hæsti hiti sem mælst hefur í landinu frá upphafi mælinga. Hitamet var sömuleiðis sett í Danmörku og Tékklandi í dag en hitabylgja gengur nú yfir Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Nú­verandi hita­bylgja „sú al­var­legasta sem mælst hefur“

Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn.

Erlent
Fréttamynd

Átta­tíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss

Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Dúx í MH og talar fjögur tungu­mál

Sóley Júka Magnúsdóttir Kuwahara er dúx Menntaskólans við Hamrahlíð í ár. Alls voru á föstudag brautskráðir 127 nemendur úr skólanum. Sóley var á náttúrufræðibraut og útskrifaðist sem dúx með 9,88 í meðaleinkunn.

Innlent
Fréttamynd

„Sögu­legt augna­blik“ fyrir þýska klúbba­menningu

Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gert breytingar á byggingarreglugerðum þannig að næturklúbbar séu flokkaðir með öðrum hætti en aðrir afþreyingarstaðir fyrir fullorðna. Rekstraraðilar fagna breytingunni en óttast sumir að hún komi of seint. 

Lífið
Fréttamynd

Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Banda­ríkin

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum.

Erlent