Önnur hitabylgja nálgast Spán Ný hitabylgja er sögð nema land á Spáni á miðvikudag, en þar eiga viðbragðsaðilar í fullu fangi við að ráða niðurlögum skógarelda sem logað hafa frá því í síðustu viku. 27.7.2026 15:33
Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur í dag verið með viðbúnað við flugvöllinn í Kastrup. Maður hefur verið handtekinn í kjölfar tilkynningar sem barst lögreglu um mann sem sást með „hlut er líktist skammbyssu“. 27.7.2026 14:35
Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Liðsmenn úr æfingaflota japanska sjóhersins eru komnir til Íslands en sjóliðar af skipinu munu halda tónleka á torginu fyrir framan Hörpu á miðvikudag. 27.7.2026 14:14
Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lögreglunni á Suðurlandi bárust tvær tilkynningar um vasaþjófnað um helgina. Þá varð einnig atvik við Skógafoss þar sem ferðamaður hnakkreifst við meinta vasaþjófa, hrifsaði af þeim síma og kastaði honum út á tún. Lögreglumaður á Suðurlandi segir það reglulegt orðið að tilkynningar berist um vasaþjófnað. 27.7.2026 11:27
Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Umferð netþjarka, eða svokallaðra „botta“, á samfélagsmiðlum hefur aukist verulega á síðustu árum. Netöryggismiðstöð Íslands brýnir fyrir fólki að vera á varðbergi í aðdraganda atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þar sem samfélagsmiðlareikningar sem gefa sig út fyrir að vera alvöru fólk gætu reynst bottar. Almenningur er hvattur til að tilkynna það þegar þau telja sig rekast á botta. 24.7.2026 19:24
Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sendiherra Íslands í Madrid segir að spænsk-íslensk hjón hafi þurft að flýja heimili sitt vegna skógarelda í nágrenni við Madríd. Skógareldar hafa valdið miklu tjóni á Spáni, Ítalíu og í Frakklandi undanfarna viku. 24.7.2026 18:45
Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. 24.7.2026 13:12
Verði að hætta að benda hver á annan Verðbólga mælist 5,3 prósent og allt bendir til þess að verðbólguskilyrði kjarasamninga standist ekki í september. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að aðilar vinnumarkaðarins verði að hætta að benda hver á annan og taka höndum saman til að draga úr verðbólgu í landinu. 23.7.2026 23:10
Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki „Ef markmiðið með forsenduákvæðinu var að tryggja kaupmátt þá held ég að allt bendi til þess að það hafi gengið eftir,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 23.7.2026 13:28
Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Fjármálaráðherra segir það góðar fréttir að innlend verðbólga sé á undanhaldi, þótt það séu slæmar fréttir að verðbólga aukist. Forseti ASÍ segir það svo gott sem klárt mál að verðbólguviðmið kjarasamninga náist ekki í haust. Ráðherra segir að þrátt fyrir að verðbólguviðmiðið muni líklegast ekki standast hafi kaupmáttur haldist við. 23.7.2026 12:42