„Mér fannst þetta ekki víti“ Hans Viktor Guðmundsson, varnarmaður KA, var svekktur með vítið sem hann fékk dæmt á sig og leiddi til jöfnunarmarks ÍBV í 2-2 jafntefli liðanna í 15. umferð Bestu deildar karla. Hann segir dómarann hins vegar hafa hárrétt fyrir sér í rauða spjaldinu sem ÍBV fékk. 19.7.2026 16:42
Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Kimi Antonelli komst aftur á sigurbraut í Formúlu 1 kappakstrinum í Belgíu eftir að hafa misst af toppsætinu í síðustu þremur keppnum. 19.7.2026 14:50
Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Lewis Hamilton hjá Ferrari og George Russell hjá Mercedes lentu í árekstri á fyrsta hring Formúlu 1 kappakstursins í Spa í Belgíu. 19.7.2026 14:05
Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Cameron Young átti erfiðan gærdag en fór fljúgandi af stað á lokadegi Opna breska meistaramótsins og er í bullandi baráttu um efsta sætið. Scottie Scheffler nálgast Sam Burns sömuleiðis óðfluga. 19.7.2026 13:55
„Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ „Alltaf gaman að spila við KR, eitt stærsta lið landsins og alltaf gaman að kljást við þá,“ segir Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, fyrir heimsóknina á Meistaravelli síðar í dag. Stjarnan getur stokkið upp í efri hluta deildarinnar með sigri en mun þurfa að sigrast á þreytunni og líklega gera það án fyrirliða síns, Guðmundar Kristjánssonar. 19.7.2026 13:19
Vonar að Modric haldi áfram Slaven Bilic, nýráðinn landsliðsþjálfari Króatíu, vonar að Luka Modric haldi áfram að spila fyrir landsliðið. 19.7.2026 12:01
Infantino veðurtepptur og Spánn hætti við æfingu Gianni Infantino forseti FIFA komst ekki á bronsleik HM í Miami og Spánn þurfti að hætta við síðustu æfinguna fyrir úrslitaleikinn vegna ofsaveðursins sem gekk yfir New York borg í gær. Argentína slapp með skrekkinn. 19.7.2026 11:17
Maður dagsins á HM: Stjörnustrákurinn vildi spila meira Bukayo Saka skoraði þrennu í 6-4 sigri Englands gegn Frakklandi í bronsleik HM í gærkvöld en „hefði elskað“ að spila meira á mótinu og segist hafa verið í formi til þess. 19.7.2026 10:34
Messi þarf að minnsta kosti tvennu til að taka fram úr Mbappé Eftir markaregn í bronsleiknum er Kylian Mbappé orðinn markahæsti leikmaður á HM 2026 og í keppninni frá upphafi. Lionel Messi þarf að minnsta kosti tvö mörk til að taka fram úr honum. 19.7.2026 10:02
Sveindís skoraði í þriðja sigurleiknum í röð Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði annað mark Angel City FC í 0-2 útisigri gegn Chicago Stars FC. Englarnir hafa nú unnið þrjá leiki í röð og eru komnir upp í 7. sæti deildarinnar. Sveindís Jane er komin með tvö mörk í þremur leikjum eftir meiðsli. 19.7.2026 09:12