Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Knattspyrnumaðurinn Aedan Scipio hefur vakið mikla athygli fyrir að vera með gríðarlega sítt hár. Hann kom inn á fyrir Anguilla gegn Antigua og Barbuda í Þjóðadeild CONCACAF og enduðu tveir leikmenn Antigua og Barbuda á að fá rautt spjald fyrir að toga í hárið á Scipio. 27.9.2026 23:30
Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Kylfingurinn Corey Conners lenti í ótrúlegu atviki í Forsetabikarnum í golfi þegar hann skaut boltanum út af vellinum og í átt að áhorfendum. Einum áhorfendanna brá og endaði á því að sparka boltanum aftur inn á brautina. 27.9.2026 22:48
Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Hlaupagarpurinn Arnar Pétursson tók þátt í heimsmeistaramótinu í 100 kílómetra hlaupi sem fór fram í borginni Koper sem er staðsett í Slóveníu. Hann undirbjó sig vel fyrir mótið og var með miklar væntingar en hitinn var honum ofviða og þurfti hann að hætta keppni. 27.9.2026 22:01
Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Mikill hiti getur myndast í keppni þegar Bandaríkin keppa á móti öðrum löndum. Lokadagur Forsetabikarsins er í dag þar sem spilað er í Chicago og voru stuðningsmenn Bandaríkjanna til vandræða. 27.9.2026 21:17
Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Tveir leikir fóru fram í A-deild Þjóðardeildarinnar í kvöld þar sem Noregur tók á móti Portúgal og Þýskaland tók á móti Grikklandi. Portúgal náði að sækja 2-1 sigur í Noregi og Grikkland vann óvænt í Þýskalandi 1-0. 27.9.2026 20:52
Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Kóreski kylfingurinn Tom Kim er búinn að spila frábærlega í Forsetabikarnum í golfi fyrir alþjóðlega liðið sem mætir liði Bandaríkjanna. Hann mun þó ekki geta verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna ef lið hans vinnur mótið. 27.9.2026 20:01
Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Leikmenn írska landsliðsins litu niður þegar þjóðsöngur Ísraels var spilaður í leik þeirra í B-deild Þjóðadeildar karla í fótbolta. 27.9.2026 19:41
Zverev náði að tryggja Evrópu sigurinn Lið Evrópu náði að vinna Laver-bikarinn í tennis þar sem Evrópa keppir á móti restinni af heiminum. Alexander Zverev náði að halda áfram góðu gengi í ár og tryggði Evrópu sigurinn með því að vinna Learner Tien í tveim settum. 27.9.2026 19:16
Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Ísrael tók á móti Írlandi í B-deild Þjóðadeildarinnar og þurfti leikurinn að vera spilaður í Ungverjalandi vegna átaka í ríkjum í kringum Ísrael. Írland var mun betri aðilinn í leiknum og vann leikinn 3-0. 27.9.2026 18:16
Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Þrír leikir fóru fram í A- og B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Holland rétt náði að sækja 2-1 sigur á Serbíu, Danmörk vann Wales sannfærandi 2-0 og Austurríki vann öruggan 3-1 sigur á Kosovo. 27.9.2026 18:13