Starfsmenn Krónunnar í Flatahrauni í sóttkví eftir smit starfsmanns Fimm starfsmenn Krónunnar í Flatahrauni hafa verið sendir í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með Covid-19. Er um að ræða alla þá starfsmenn sem voru í samskiptum við umræddan starfsmann. 6.10.2020 09:18
Auglýsingastofa höfðar mál vegna öskurherferðarinnar Íslensk auglýsingastofa er nú með lögsókn í undirbúningi vegna keppni og aðdraganda kynningarherferðarinnar „Ísland saman í sókn“ sem ráðist var í eftir að heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á. 6.10.2020 08:33
Samræmt kerfi til að auðvelda ferðalög til skoðunar Evrópusambandið hefur nú til skoðunar að koma á fót samræmdu kerfi til að auðvelda megi ferðalög innan evrópska efnahagssvæðisins á tímum heimsfaraldursins. 6.10.2020 08:01
Mótmælendur í Kirgistan ruddust inn í þinghús landsins Mótmælendur í höfuðborg Kirgistans, Bishkek, réðust í morgun inn í þinghús landsins. Fólkið var að mótmæla nýyfirstöðnum þingkosningum í landinu og krefjast þess að þær yrðu lýstar ógildar en margir hafa sakað ráðandi öfl í landinu um kosningasvindl. 6.10.2020 07:29
Víða rigning í dag og á morgun Landsmenn mega eiga von á að það rigni víða fyrripartinn í dag en þegar líður á daginn mun stytta upp fyrir norðan og austan. 6.10.2020 07:16
IKEA lokar veitingastaðnum IKEA á Íslandi hefur ákveðið að loka veitingastaðnum og kaffihúsið í ljósi hertra aðgerða heilbrigðisyfirvalda. 5.10.2020 11:21
59 greindust innanlands og fimmtán á sjúkrahúsi 59 greindust innanlands og voru 34 þeirra í sóttkví. Þetta segir Víðir Reynisson í samtali við fréttastofu. 5.10.2020 10:58
Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvanir um lifrarbólgu C Bandaríkjamennirnir Harvey J. Alter, Michael Houghton og Charles M. Rice fá Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar um lifrarbólgu C veiruna. 5.10.2020 09:50
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. 5.10.2020 09:26
Ráðherra sakar Ágúst Ólaf um „botnlausa kvenfyrirlitningu“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sakað Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann Samfylkingarinnar, um „botnlausa kvenfyrirlitningu“ vegna orða sem hann lét falla í Sprengisandi á Bylgjunni á laugardag. 5.10.2020 08:49