Bólusetning við bólusótt veiti 85 prósent vernd gegn apabólu Bólusetning við bólusótt virðist veita í það minnsta 85 prósent vernd gegn apabólu. Þetta kemur fram í svari læknisins Jóns Magnúsar Jóhannessonar á Vísindavefnum við spurningunni: „Eru þeir sem fengu bólusetningu við kúabólu með ónæmi við apabólu?“. 15.6.2022 09:47
Handtaka annan mann vegna hvarfs breska blaðamannsins Bróðir mannsins sem handtekinn var á dögunum vegna hvarfsins á breskum blaðamanni og brasilískum samferðamanni hans, var einnig handtekinn í gær. 15.6.2022 08:49
Vaktin: Putin og Xi Jinping semja um frekara samstarf Rússar ákváðu í morgun að opna svokallaðan mannúðargang frá úkraínsku borginni Severodonetsk en þeir hafa nú náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Gangurinn á vera opinn í tólf klukkutíma en þeir sem kjósa að forða sér frá borginni þurfa þó að fara í norður, þar sem Rússar ráða ríkjum. 15.6.2022 07:13
Svínaði fyrir lögreglubíl númerslaus, undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda Það var nóg um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt dagbók lögreglu. Þónokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. 15.6.2022 06:20
Nýtti tækifærið og stökk út um glugga Deildarstjóri og umsjónarmaður Dýraþjónustu Reykjavíkur harmar það að kötturinn Nóra hafi sloppið úr haldi þjónustunnar. Verið sé að fara yfir verkferla sem varða notkun á gildrum. 14.6.2022 13:23
Allt að tíu sinnum meiri kostnaður en gert var ráð fyrir Ríkisendurskoðun hefur lokið úttekt á framkvæmda- og rekstrarkostnaði Landeyjahafnar. Kostnaður við dýpkun hafnarinnar reyndist vera mikið hærri en gert var ráð fyrir. 14.6.2022 12:08
Óalgengt að vera einkennalaus Þrátt fyrir að það sé erfitt að skilgreina nákvæmlega hversu margir fá einkenni eftir að hafa smitast af apabólu, er það óalgengt að vera einkennalaus. Það er þó ekki ómögulegt. Þetta kemur fram í svari læknisins Jóns Magnúsar Jóhannessonar við fyrirspurninni: „Hvað er apabóla?“ á Vísindavefnum. 14.6.2022 10:29
Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar. 14.6.2022 07:59
Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. 14.6.2022 07:27
Ungmenni nefbraut ungmenni í Kópavogi Klukkan rúmlega fimm í gær fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um líkamsárás í Kópavogi. Árásarþoli var fluttur nefbrotinn á bráðadeild til aðhlynningar en bæði hann og gerandinn eru fæddir árið 2008. 14.6.2022 07:03