Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis. 21.3.2026 06:03
Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fjórum karlmönnum sem handteknir voru í tengslum við alvarlega hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Einn er enn í gæsluvarðhaldi en ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum. 20.3.2026 21:44
Skammt stórra högga á milli Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir flesta landshluta fram til morguns og vegir um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Steingrímsfjarðarheiði meðal þeirra sem eru lokaðir. Veðurfræðingur segir skammt stórra högga á milli og landsmenn þurfi að venjast vetrarríki á næstunni. 20.3.2026 19:43
Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Arion banki og Íslandsbanki hafa boðað vaxtabreytingar í kjölfar nýlegrar vaxtahækkunar Seðlabankans. Íbúðalánavextir hækka um allt 0,25 prósentustig og innlánsvextir um 0,35. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti bankans um 0,25 prósentur á miðvikudag og standa þeir í 7,50%. 20.3.2026 17:30
„Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Fyrirtækið Green Parking segir rangfærslur hafa komið fram í umfjöllun um ökumann sem rukkaður var um vangreiðslugjald þegar hann lagði bíl við Domino‘s í Nóatúni í Reykjavík. Ekki sé rétt að fólk þurfi að vera með app í síma til að geta lagt þar frítt í 45 mínútur. 16.3.2026 22:10
Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, hefur tryggt sér sæti í aðalkeppni Bocuse D’Or. Hún keppti í dag í stærstu kokkakeppni Evrópu og er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd. Þema hennar í keppninni var fjallkonan og íslenski þjóðbúningurinn. 16.3.2026 19:21
Tilkynnt um mann með sverð Lögreglu var í dag tilkynnt um mann með sverð og var hann sagður „talsvert æstur“ á meðan hann sótti sér þjónustu á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu. Sverðið reyndist vera eftirlíking en þegar laganna verðir komu á staðinn sást maðurinn sveifla því á meðan hann gekk á miðri akbraut, að sögn lögreglu. 16.3.2026 17:16
Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Hversu vel fylgdist þú með í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 15.3.2026 06:02
Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis. 14.3.2026 06:02
Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Áætlað er að 188 einstaklingar hefðu verið vistaðir í fyrirhugaðri brottfararstöð á síðasta ári ef úrræðið hefði verið til staðar. Þetta er mat heimferðar- og fylgdardeildar ríkislögreglustjóra. Það byggir á tölum yfir fólk sem fylgt var úr landi árið 2025 og hefði mögulega uppfyllt skilyrði lagafrumvarpsins sem er til umræðu í þinginu. 12.3.2026 22:30