Níu íbúar á Eir hjúkrunarheimili með Covid-19 Níu íbúar á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi hafa greinst með Covid-19. Íbúarnir eru sagðir vera með lítil eða engin einkenni en flestir þeirra hafa verið þríbólusettir. 14.1.2022 11:34
Vatnið í eyranu reyndist vera kakkalakki Lítill kakkalakki var fjarlægður úr eyra karlmanns á Nýja Sjálandi á mánudag. Þá voru þrír dagar liðnir frá því hann byrjaði að finna fyrir einhverju iða í eyranu á sér. 13.1.2022 17:25
Lokuðu leikskólanum í dag vegna stórrar hópsýkingar 38 börn og starfsmenn í leikskólanum Sæborg í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Tvær deildir af fjórum hafa verið lokaðar seinustu daga vegna þessa en ákveðið var að loka skólanum alfarið í dag og á morgun eftir að þriðja deildin var send í sóttkví. 13.1.2022 16:44
Helgi Seljan frá RÚV á Stundina: „Veitir mér leyfi til að svara fyrir mig“ Fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi, sem hefur starfað á miðlinum frá árinu 2006, hefur verið í leyfi frá störfum og hyggst ekki snúa aftur. Hann tekur við sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar þann 15. febrúar. 13.1.2022 13:15
Bretar stytta einangrun úr sjö dögum í fimm Fólk sem greinist með Covid-19 á Englandi þarf einungis að sæta einangrun í fimm daga að lágmarki í stað sjö frá og með næsta mánudegi. Þetta tilkynnti Sajid Javid, heilbrigðisráðherra Breta, í neðri málstofu breska þingsins í dag. 13.1.2022 12:44
Spá hjaðnandi verðbólgu Íslandsbanki og Landsbankinn spá því að vísitala neysluverðs lækki um 0,2% í janúar og tólf mánaða verðbólga mælist 5,0% í janúar. Hún var 5,1% í desember. 13.1.2022 11:57
1.101 greindist innanlands í gær 1.101 einstaklingur greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og 105 á landamærum. 46% þeirra sem greindust innanlands voru í sóttkví við greiningu og 54% utan sóttkvíar. 13.1.2022 10:38
Ætla að sitja við sinn keip Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í gær til stæði að loka Facebook-síðu embættisins með vísan til persónuverndarsjónarmiða. Um sólarhring síðar er síðan orðinn óaðgengileg almenningi og tíu ár af Facebook-færslum á bak og burt. Engin önnur lögregluembætti hafa tekið ákvörðun um að feta í fótspor Suðurnesjamanna. 12.1.2022 17:39
Stærsta áskorun heilbrigðiskerfisins þrátt fyrir færri sjúklinga Landlæknir segir að heilbrigðiskerfið sé að takast á við sína stærstu áskorun frá því að faraldurinn hófst. Þó færri Covid-sjúklingar séu á sjúkrahúsi nú en þegar mest lét árið 2020 séu aðstæður að mörgu leyti óhliðhollari en áður. 12.1.2022 17:00
Keyrt á barn við Bústaðaveg Ekið var á barn við Bústaðaveg í Reykjavík nærri Valsvelli á fjórða tímanum í dag. Barnið hlaut minniháttar meiðsl. 12.1.2022 15:53