Fréttamaður

Elín Margrét Böðvarsdóttir

Elín Margrét er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“

Danska ríkisstjórnin kynnti á föstudaginn umfangsmiklar breytingar á löggjöf um brottvísanir frá landinu sem stjórnvöld þar í landi hafa boðað. Meðal annars hyggjast stjórnvöld lækka þröskuldinn fyrir brottvísanir frá Danmörku vegna glæpa, enduropna sendiráð sitt í Sýrlandi til að liðka fyrir endursendingum Sýrlendinga þangað og efla fjárhagslega hvata fyrir erlenda ríkisborgara til að snúa aftur til baka. Áformin hafa sætt gagnrýni af hálfu þeirra sem vilja meina að þau standist ekki alþjóðlega sáttmála á borð við Mannréttindasáttmála Evrópu, en dönsk stjórnvöld segjast tilbúin að „taka sénsinn“ til að flýta fyrir breyttri túlkun á mannréttindasáttmálanum.

Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur hand­tekinn í gær

Héraðsdómur í Osló úrskurðaði í dag norska stjúpprinsinn Marius Borg Høiby, son norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, í gæsluvarðhald til 2. mars. Farið var fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir Høiby, sem var handtekinn aftur í gærkvöldi, grunaður um líkamsárás, hótun með hnífi og brot gegn nálgunarbanni. Þar að auki hefjast réttarhöld yfir Høiby á morgun vegna fjölda annarra mála, en hann sætir ákæru vegna 38 meintra brota á lögum, meðal annars fyrir ofbeldi í nánu sambandi, nauðgun og fleiri ofbeldisbrot.

Sam­stillt þing­nefnd vill taka ESB út úr orða­lagi nýrrar stefnu

Ný stefna í varnar- og öryggismálum var afgreidd úr utanríkismálanefnd í síðustu viku þar sem fulltrúar allra flokka á Alþingi taka undir sameiginlegt nefndarálit um málið. Nefndin gerir fjórar breytingatillögur við þingsályktunina sem flestar fela í sér orðalagsbreytingar. Nefndin leggur hins vegar til að ekki verði minnst sérstaklega á Evrópusambandið í stefnunni og vill árétta að varnar- og öryggisstefnan, sem verður sú fyrsta sem Alþingi setur formlega á Íslandi, verði órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggisstefnu sem þegar liggur fyrir. Alls bárust 24 umsagnir um málið.

Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur

Bad Bunny, Lady Gaga, Kendrick Lamar, Lola Young og Olivia Dean voru meðal þeirra sigursælustu á Grammy-tónlistarverðlaunahátíðinni sem fór fram í Los Angeles í nótt. Laufey Lín Jónsdóttir nældi sér jafnframt í sín önnur Grammy-verðlaun fyrir plötuna A Matter of Time. 

Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá alda­mótum

Danska leik- og söngkonan Annika Wedderkopp er fyrsta konan síðan árið 1999 til að eiga vinsælustu plötu ársins á danska topplistanum. Hún átti jafnframt tólf af hundrað vinsælustu lögum ársins, en eftir að hafa fyrst slegið í gegn á hvíta tjaldinu sem barn er Annika nú á góðri leið með að verða ein stærsta poppstjarna Danmerkur.

Nær altjón í iðnaðar­hús­næði eftir bruna á Húsa­vík

Mikið tjón varð á iðnaðarhúsnæði við Haukamýri á Húsavík þegar eldur kom upp í húsinu í morgun. Um er að ræða nokkurra fermetra iðnaðarhúsnæði en mestur eldur logaði í og við kaffistofu húsnæðisins. Slökkvistarfi er að mestu lokið en húsið verður áfram vaktað í dag og slökkt í þeim glæðum sem enn kunna að loga.

Ná saman um myndun minni­hluta­stjórnar í Hollandi

Þrír stjórnmálaflokkar hafa náð samkomulagi um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi en stjórnarflokkarnir munu þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka til að ná málum í gegn. Rob Jetten, leiðtogi miðjuflokksins D66 sem er hliðhollur Evrópusambandinu, segir samstarfsflokkana vera ólma í að hefjast handa við stjórnvölinn eftir langar og flóknar viðræður um stjórnarmyndun.

Af­neitun hel­fararinnar verði gerð refsi­verð og fræðsla aukin

Íslensk stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að 27. janúar verði framvegis opinber minningardagur helfararinnar hér á landi, líkt og í nágrannalöndum. Starfshópur sem Katrín Jakobsdóttir skipaði í sinni tíð sem forsætisráðherra skilaði í gær skýrslu með tillögum um það hvernig megi minnast helfararinnar hér á landi. Hópurinn leggur meðal annars áherslu á aukna fræðslu um sögu helfararinnar og aðdragandann að henni, en gerir einnig tillögu að mögulegum breytingum á hegningarlögum og um formlega afsökunarbeiðni.

Kynna einn fram­bjóðanda á dag næstu daga

Miðflokkurinn byrjaði í fyrradag að kynna fólk á lista flokksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og hyggst halda áfram að kynna einn frambjóðenda á dag á næstu dögum. Ekki liggur endanlega fyrir hvenær fullur listi verður kynntur eða hulunni svipt af því hver verður oddviti flokksins í Reykjavík.

Heiða tekur annað sætið í Reykja­vík

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ætlar að taka 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík sem hún tryggði sér í prófkjöri flokksins á laugardaginn, þegar hún tapaði slagnum um oddvitasætið. Hún óskar Pétri Marteinssyni aftur til hamingju með sigurinn og öllum þeim sem tryggðu sér sæti á lista og segist áfram ætla að vinna í þágu borgarinnar á grundvelli hugsjóna sinna og jafnaðarstefnunnar.

Sjá meira