Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Saksóknarar í New York hafa fellt niður ákæru á hendur kvikmyndaframleiðandanum og kynferðisafbrotamanninum Harvey Weinstein. Málið hafði þegar verið tekið fyrir þrisvar sinnum, einu sinni leiddi það til sakfellingar sem var hnekkt og tvisvar sinnum komst kviðdómur ekki að niðurstöðu. Aðrar sakfellingar Weinsteins, þar á meðal fyrir annað kynferðisbrot í New York og önnur í Kaliforníu, standa enn. 25.6.2026 20:25
Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur verið skikkað til þess að breyta reglum sínum um sætaskipan fyrir fjölskyldur og leyfa foreldrum að sitja við hlið ungra barna sinna án þess að greiða gjald fyrir sætapöntun. Er þetta í kjölfar rannsóknar sem breska samkeppnis- og markaðseftirlitið (CMA) hóf nýverið til að kanna hvort stefna flugfélagsins, sem eftirlitið segir að leiði venjulega til gjalds upp á átta pund, eða þrettán hundruð krónur, hvora leið, sé „ósanngjörn“ samkvæmt neytendalögum. 25.6.2026 19:29
Stúlkan er fundin Sautján ára stúlka sem lögregla lýsti í tvígang eftir í vikunni er fundin. 25.6.2026 19:08
Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann Lögreglunni barst tilkynning um árekstur á áttunda tímanum í morgun, fimmtudaginn 25. júní, þar sem ekið hafði verið á reiðhjólamann með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Þá hafnaði hann á gangstéttarkanti og var fluttur á slysadeild en ekki liggur fyrir hve alvarlega áverka hann hlaut. 25.6.2026 17:57
Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum. 25.6.2026 17:35
Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjarinn, sem hefur verið kallaður konungur retróleikja, byrjaði árið 2011 að spila tölvuleiki í beinni útsendingu oft á viku en sunnudaginn 14. júní boðaði hann sinn seinasta straum. Á þessum ríflega fimmtán árum varð til hópur fólks sem hann þekkti ekki í sjón en talaði við oftar en sumir tala við fjölskylduna sína. Þá voru nokkur skipti þar sem hann hefði geta tekið stökkið, hætt að vinna og haft lífsviðurværi sitt af tölvuleikjastreyminu einu saman. 24.6.2026 21:01
Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Vegna tíðra óhappa á golfbílum í leigu ungra kylfinga hefur aldurstakmark hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar verið hækkað í tuttugu og fimm, en það er átta ára hækkun frá fyrra aldurstakmarki hjá klúbbnum. 24.6.2026 19:47
Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest Í Frakklandi hefur fyrsta tilfelli ebólu verið staðfest en læknir sem var nýkominn aftur heim úr hjálparstarfi í Austur-Kongó er smitaður. Er þetta fyrsta staðfesta ebólutilfelli inna Evrópu. Ebólufaraldur hefur geisað í Mið-Afríku ríkinu síðustu vikur en einnig eru staðfest smit í nágrannaríkinu Úganda. 24.6.2026 16:49
Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. 24.6.2026 15:56