Fréttamaður

Jón Þór Stefánsson

Jón Þór er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Leggja til van­traust á hendur Silju Báru

Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands, sem eru í meirihluta í ráðinu, hafa lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskólans. Ástæða þess er meint ábyrgðarleysi í hækkun skrásetningargjalda.

Líf bar sigur úr býtum

Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann.

Sinueldur við Elliða­vatn

Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið.

Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina til­viljun

Bergþór Pálsson, óperusöngvari, dvaldi um áramótin í herberginu þar sem eitt ástsælasta óperutónskáld veraldar, Giuseppe Verdi, andaðist fyrir öld og aldarfjórðungi síðan. Það kom til fyrir hreina tilviljun.

Sjálf­stæðis­menn mynda banda­lag á Akur­eyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Heimir Örn Árnason, sitjandi oddviti flokksins á Akureyri og formaður bæjarráðs, ætla að styðja hvort annað í komandi sveitarstjórnarkosningum. Berglind mun styðja Heimi í annað sæti lista flokksins og Heimir mun styðja að Berglind fái oddvitasætið.

Segir Heiðu hafa átt betra skilið

Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar sem hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík í gær, segist ætla að taka sætið þó að hann hafi ekki náð markmiði sínu, en hann sóttist eftir öðru sætinu.

Fyrr­verandi ráð­herrar ræða alþjóðamálin

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni.

Þurrt og bjart víða um landið

Hæðarsvæði fyrir norðan land, sem teygir sig frá Grænlandi yfir til Skandinavíu, gerir það að verkum að lægðir komast ekki hina algengu leið til norðurs. Það veldur því að lægðirnar sunnan lands þrýsta á móti hæðinni og má búast við allhvössum eða hvössum vindi allra syðst á landinu en hægari annars staðar.

Sjá meira