Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. 21.9.2021 09:54
Rússnesk stjórnvöld talin hafa myrt Litvinenko Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að rússnesk stjórnvöld hefðu staðið að morðinu á Alexander Litvinenko, rússneskum fyrrverandi leyniþjónustumanni, árið 2006. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirku efni. 21.9.2021 08:59
Vísa hundruðum Haítíbúa úr landi þrátt fyrir ófremdarástand Bandaríkjastjórn flaug á fjórða hundrað Haítíbúum úr landi í gær og kom í veg fyrir að fjöldi annarra kæmist yfir landamærin frá Mexíkó. TIl stendur að senda enn fleiri Haítíbúa til síns heima þrátt fyrir hamfarir og pólitískan óstöðugleika þar. 20.9.2021 15:54
Sakar Viðskiptablaðið og Morgunblaðið um samantekin ráð gegn sér Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, sakar Morgunblaðið og Viðskiptablaðið um samantekin ráð til að gera lítið úr jafnaðarmannaskoðunum hennar. Fjölmiðlarnir tveir hafa fjallað um kauprétt sem hún nýtti sér á hlutabréfum í Kviku banka. 20.9.2021 14:55
Sex nú sagðir látnir í skotárásinni í Rússlandi Háskólanemi sem hóf skothríð á skólafélaga sína í borginni Perm í Rússlandi í morgun drap að minnsta kosti sex manns og særði fjöldi annarra. Hann særðist sjálfur þegar hann streittist gegn handtöku og liggur á sjúkrahúsi. 20.9.2021 13:02
Hótelstjórinn í Rúanda sakfelldur fyrir hryðjuverk Dómstóll í Rúanda sakfelldi Paul Rusesabagina fyrir hryðjuverk í dag. Rusesabagina var hylltur sem hetja þegar hann bjargaði á annað þúsund manns frá þjóðarmorði í landinu árið 1994. Hann heldur fram sakleysi sínu og telur sakirnar eiga sér pólitískar rætur. 20.9.2021 12:21
Bóluefni Pfizer sagt verja fimm til ellefu ára börn Lyfjarisinn Pfizer segir að bóluefni sitt gegn kórónuveirunni verndi börn á aldrinum fimm til ellefu ára. Fyrirtækið ætlar sér að sækja um leyfi til að gefa börnum bóluefnið í Bandaríkjunum á næstunni. 20.9.2021 11:34
Tuttugu og fimm greindust innanlands Tuttugu og fimm manns greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Rúmlega þrjú hundruð manns eru nú í einangrun með Covid-19, tæplega fimmtíu færri en fyrir helgi. 20.9.2021 11:01
Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. 20.9.2021 10:21
Varar fólk við að reyna að smitast af veirunni Ómögulegt er að segja til um hver veikist alvarlega af þeim sem smitast af kórónuveirunni. Því varar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, fólk endregið við því að reyna vísvitandi að smitast. 20.9.2021 08:51