Breytt bragð- eða lyktarskyn kallar á sýnatöku Þeir sem hafa orðið fyrir breytingum á bragð- eða lyktarskyni en engin önnur þekkt einkenni COVID-19-sjúkdómsins sem nýtt afbrigði kórónuveiru veldur eru nú beðnir um að láta taka sýni úr sér. 2.4.2020 15:35
Landlæknir óttast að kjaradeila hafi áhrif á mönnun í faraldrinum Kjaradeila hjúkrunarfræðinga og ríkisins getur haft áhrif á mönnum í heilbrigðiskerfinu á næstu vikum, að mati Ölmu Möller, landlæknis, sem biðlar til samningsaðila um leysa deiluna. Forstjóri Landspítalans sagði til skoðunar hvernig væri hægt að umbuna heilbrigðisstarfsfólki vegna álags á tímum kórónuveirufaraldursins. 2.4.2020 15:14
Taka lýðræðið úr sambandi í skjóli faraldursins Eftirlit með símanotkun almennra borgara og þungir fangelsisdómar fyrir að hunsa útgöngubann er á meðal harðra aðgerða sem popúlískir þjóðarleiðtogar í Austur-Evrópuríkjum og víðar hafa gripið til vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Sumir þeirra eru sakaðir um að notfæra sér neyðarástandið til þess að sanka að sér völdum. 2.4.2020 14:38
99 ný smit Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur COVID-19-sjúkdómnum eru nú alls 1319 hér á landi. 2.4.2020 13:28
Olíuiðnaðurinn aldrei upplifað annað eins áfall og nú Öll spjót standa nú á olíuiðnaðinum sem hefur aldrei upplifað annað eins áfall og nú vegna kórónuveiruheimsfaraldursins. Alþjóðaorkumálastofnunin varar við því að áhrifin á sum viðkvæm olíuútflutningsríki eigi eftir að verða alvarleg. 2.4.2020 11:14
Faraldurinn raskar veðurathugunum í háloftunum Lömun flugsamgangna í heiminum vegna kórónuveirufaraldursins hefur fækkað veðurathugunum í háloftunum verulega á undanförnum vikum. Alþjóðaveðurfræðistofnunin lýsir áhyggjum af áhrifunum á veðurspár og loftslagsrannsóknir. 2.4.2020 09:00
Almenningur noti ekki grímur að nauðsynjalausu Ekki stendur til að endurskoða tilmæli til almennings varðandi notkun á grímum til að verjast kórónuveirusmiti. Sóttvarnalæknir segir yfirvöld vilja að almenningur noti ekki grímur að nauðsynjalausu því að þau vilji spara búnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk. 1.4.2020 16:11
Tvöfalt fleiri umsóknir á einum mánuði en allt árið í fyrra Vinnumálastofnun bárust um 32.000 umsóknir um greiðslur í mars, um tvöfalt fleiri en allt árið í fyrra. Forstjóri stofnunarinnar segist aldrei hafa horft upp á annað eins og biður fólk um að hafa skilning á miklu álagi sem er á starfsmönnum hennar. 1.4.2020 15:29
Leggur til framlengingu samkomubanns út apríl Sóttvarnalæknir ætlar að leggja til við heilbrigðisráðherra að samkomubann og aðrar aðgerðir til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins verði framlengdar út apríl. 1.4.2020 14:11
Telja sig á spori viðsjálla svarthola Röntgenblossi sem tvö gervitungl komu auga á fyrir fjórtán árum gæti verið skýrasta vísbendingin um tilvist meðalstórra svarthola sem stjörnufræðingum hefur reynst erfitt að finna í alheiminum. Uppgötvunin gæti varpað frekara ljósi á hvernig risasvarthol þróast og verða til. 1.4.2020 13:09