Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Portúgölsk kona á sjötugsaldri sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Málum sem snúa að burðardýrum hefur fjölgað verulega að sögn lögreglu. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum. 5.5.2026 19:13
Vonarneisti eftir erfiðan vetur Stefnt er að því að sigla Herjólfi til Landeyjarhafnar síðdegis en ferjan hefur nánast alfarið siglt til Þorlákshafnar síðan í janúar. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ástandið í vetur hafa reynst mörgum Vestmannaeyingum erfitt og vonar að dagurinn marki formlega opnun á höfninni á þessu ári. 5.5.2026 10:51
„Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Samdráttur er í komum skemmtiferðaskipa á Austurlandi eftir að aukin gjaldtaka tók gildi. Breytingin hefur meiri áhrif á minni bæjarfélög, að sögn yfirhafnarvarðar. 29.4.2026 22:13
Stefni í sömu átt og Svíþjóð Aukinn innflutningur fíkniefna með Norrænu veldur verulegum áhyggjum. Lögreglan segir málin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og að grípa verði inn í áður en ástandið versni. 29.4.2026 20:37
Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Sölustaðir nikótínpúða hafa margfaldast á aðeins örfáum árum og eru nú ríflega þrjú hundruð. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun berast reglulega tilkynningar um að börnum séu seldir nikótínpúðar. 26.4.2026 07:03
Nánast búin með stafrófið Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er hafin og hafa þegar tvö hundruð og þrjátíu manns kosið hjá sýslumönnum og sendiráðum. Frambjóðendur á landinu öllu eru ríflega þrjú þúsund. 20.4.2026 13:24
Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Fatlaðar konur eru tvisvar til þrisvar sinnum líklegri til þess að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi en aðrar konur. Formaður ÖBÍ réttindasamtaka segir þetta sláandi en í vikunni undirrituðu samtökin og Kvennaathvarfið samstarfssamning sem miðar að því að efla vernd fatlaðra kvenna og stúlkna gegn ofbeldi. 17.4.2026 20:36
Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi að sögn lögreglunnar. Lagt var hald á rúmlega fjórtán lítra af amfetamínbasa um borð í skipinu. Við ræðum við aðstoðaryfirlögregluþjón um málið í fréttatímanum okkar. 16.4.2026 18:11
Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Umsóknum til Útlendingastofnunar um au-pairleyfi hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Á þriðja hundrað umsóknir bárust á síðasta ári en átta af hverjum tíu sem fengu dvalarleyfi koma frá Filippseyjum. 29.3.2026 12:18
Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Leikskóli tekur aftur til starfa í Grindavík í ágúst ef áform bæjarstjórnar ganga eftir og þá er einnig í skoðun að innrita aftur í grunnskólann í haust. Forseti bæjarstjórnar segir að foreldrar áttatíu barna hafi hug á því að nýta sér þjónustuna. 28.3.2026 16:00