Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segir til skoðunar að hefja heimsendingu á vörum Vínbúðarinnar. Það væri aðallega til að auka þjónustu og aðgengi að vöruúrvali sem er meira í netverslun þeirra en í verslunum þeirra. 28.10.2026 07:58
Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Yfirvöld í Utah í Bandaríkjunum hafa komist að því, með því að nota háþróaða erfðatækni, að hinn alræmdi raðmorðingi Ted Bundy var sá sem myrti hina sautján ára Melissa Ann Smith, dóttur lögreglustjóra. Smith fannst látin 27. október 1974 og bar merki um nauðgun og pyntingar. 52 ár eru síðan lík hennar fannst af veiðimönnum. 28.10.2026 07:09
Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Leigusala er heimilt að ganga á tryggingafé leigjanda síns eftir að köttur hans pissaði og skeit um alla íbúð með þeim afleiðingum að gólfefni eyðilagðist. Óháður matsmaður sagði eftir skoðun að kattahland og kattaskítur væru á gólfum og upp eftir veggjum. 28.10.2026 06:30
Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Búið er að telja um meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Á vef ísraelska miðilsins Haaretz kemur fram að Netanahjú og hans fylking séu með um 55 sæti af 120 og stjórnarandstaðan með 64 samanlagt. Fylking Eisenkot er samkvæmt Haaretz með 49 sæti og Arabaflokkar með 16. 28.10.2026 06:30
Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Í dag gefur dúettinn Tár út fyrsta tónlistarmyndband sitt við lagið „Isn’t Life a Bitch“. Myndbandinu er leikstýrt af Baldvin Z en Adam Thor Murtomaa sá um tökur og klippingu. 27.10.2026 20:00
Extreme Chill í febrúar í stað september Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 11.-13. febrúar. Þetta er 18. árið sem hátíðin er haldin. Dagskráin verður kynnt föstudaginn 18. desember. 27.10.2026 14:02
Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Á fimmtudaginn er spáð hvassviðri snemma morguns en veðrið á að skána seinni partinn. Djúp lægð sem hafði verið spáð fyrir lok vikunnar nær líklega ekki inn á land. Þá segir veðurfræðingur að þó svo að það geti orðið slydda og vindur á laugardag muni veðrið líklega ekki spilla hrekkjavöku eins og í fyrra. 27.10.2026 14:02
Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu. 27.10.2026 10:07
Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 lauk heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra (HOF) afgreiðslu á 271 verkbeiðni um fylgd eða brottvísun úr landi. Flest mál varða einstaklinga í ólögmætri dvöl og þar á eftir fangaflutninga eða framsal. Fjörutíu var fylgt úr landi á fyrstu níu mánuðum ársins sem höfðu afplánað þriðjung refsidóms. 27.10.2026 09:03
„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 27.10.2026 08:07