Fréttamaður

Oddur Ævar Gunnarsson

Oddur Ævar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Margir á leið í frí og það getur haft á­hrif á kosninga­nótt

Um fjörutíu prósenta aukning hefur orðið á utankjörfundaratkvæðum í sveitarstjórnarkosningum nú í samanburði við síðustu kosningar árið 2022. Fjöldinn er svo mikill að svo getur farið að úrslit á laugardagsnótt muni ekki liggja fyrir fyrr en þessi atkvæði verða talin en þau eru talin síðust.

Icelandair grunar flug­menn um græsku

Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.

Borgar­full­trúar til rann­sóknar vegna gagnaleka

Gagnaleki vegna birtingar ársreiknings Reykjavíkurborgar í lok apríl hefur verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Tekið er fram í bréfi regluvarðar Reykjavíkurborgar að um sé að ræða markaðssvik.

Fólki yfir fimm­tugt síður boðið í at­vinnu­við­töl

Atvinnulaust fólk yfir fimmtugt er lengur að finna sér vinnu og fær gjarnan ekki boð í atvinnuviðtöl, né svör frá atvinnurekendum þegar þau sækja um. Staðgengill forstjóra Vinnumálastofnunar hvetur atvinnurekendur til að mæta umsækjendum óháð aldri.

Gagn­rýna mynd­band Mið­flokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“

Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma harðlega kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ. Þar má sjá ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og kýla mann sem kallaður er „libbi“ áður en hann sest upp í bíl. Oddviti Miðflokksins sakar andstæðinga sína um ritskoðun en myndbandið er horfið af síðu flokksins.

Ó­trú­legt kjör­tíma­bil að baki á Vopna­firði

Kjörtímabilið sem nú er að líða hefur verið gríðarlega erfitt á Vopnafirði. Oddviti segir ólgu hafa gert vart við sig og ritstjóri Austurfrétta líkir kjörtímabilinu við tímabil hjá fótboltaliði í krísu.

Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent

Foreldrar leikskólabarna standa víða frammi fyrir styttri opnunartíma, fleiri lokunardögum, flóknari gjaldskrám og hærri kostnaði fyrir fulla vistun. Þannig hafa leikskólagjöld fyrir fulla vistun, átta til átta og hálfan tíma á dag, víða hækkað verulega á kjörtímabilinu, um allt að 85 prósent.

For­tíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok

Ari Edwald segir að umtalað mál úr fortíð hans hafi ekki þvælst fyrir honum í kosningabaráttunni fyrir Miðflokkinn í Reykjavík, hann einblíni á það sem sé fyrir framan hann. Ari segir velgengni sína á Tik-Tok að þakka ungum mönnum og segist nota orð við þá sem hann skilji ekki sjálfur.

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu

Ólafur Þ. Harðarson og Bogi Ágústsson segja þingmenn bera alla ábyrgð á því hve miklar tafir séu á talningu atkvæða á kjördegi í kosningum hér á landi. Ýmsar breytingar hafi verið lagðar til sem gætu flýtt öllu ferlinu sem þingmenn hafi ekki orðið við. Þá segist Bogi myndu stefna ríkinu og fara með það alla leið hefði hann tök á því til að fá misvægi atkvæða milli kjördæma leiðrétt.

Sanna hét áður Díana

Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar.

Sjá meira