Kostar Newcastle tæpan einn og hálfan milljarð að reka Steve Bruce Það mun kosta nýja eigendur Newcastle United átta milljónir punda eða tæplega einn og hálfan milljarð íslenskra króna að reka Steve Bruce, þjálfara liðsins. 9.10.2021 11:01
Ljóst hverjar og hverjir geta unnið Gullknöttinn Tímaritið France Football hefur gefið út lista með þeim leikmönnum sem tilnefndir eru til Gullknattarins í karla- og kvennaflokki. Gullknötturinn, eða Ballon d´Or eru ein virtustu einstaklingsverðlaun sem í boði eru í knattspyrnuheiminum. 9.10.2021 10:31
Kristófer Acox stal senunni: Sjáðu flottustu tilþrif fyrstu umferðar Subway-deildar karla Körfuboltakvöld hefur hafið göngu sína á ný og í gærkvöld var farið yfir allt það helsta sem gerðist í fyrstu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Hér að neðan má sjá flottustu tilþrif umferðarinnar. 9.10.2021 10:00
Laporta vonaðist til að Messi mynda spila launalaust Joan Laporta, forseti spænska knattspyrnuliðsins Barcelona, vonaðist til þess að Lionel Messi myndi spila fyrir félagið launalaust í vetur. Allt kom fyrir ekki og Messi samdi við París Saint-Germain. 9.10.2021 09:31
Félög úrvalsdeildarinnar heimta krísufund vegna yfirtöku Newcastle Félög ensku úrvalsdeildarinnar eru vægast sagt ósátt með yfirtöku Newcastle United en Mike Ashley seldi félagið á dögunum. Hin 19 félög deildarinnar vilja krísufund með forráðamönnum deildarinnar þar sem þau telja að nýir eigendur geti haft slæm áhrif á ímynd deildarinnar. 9.10.2021 09:00
Fór yfir það þegar Albert þóttist vera Willum er hann lék sér í FIFA Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson lék sér í tölvuleiknum FIFA eins og margur er hann var yngri. Það sem Albert gerði sem aðrir gerðu ef til vill ekki var að þykjast vera knattspyrnuþjálfarinn – og alþingismaðurinn - Willum Þór Þórsson og skamma leikmenn fyrir slakan fyrri hálfleik. 9.10.2021 08:00
Staðfesta að Bissouma hafi verið leikmaðurinn sem var handtekinn Í liðinni viku var greint frá því að leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hafi verið handtekinn gegna gruns um kynferðisbrot. Nú hefur verið staðfest að umræddur leikmaður sé Yves Bissoume, miðjumaður Brighton & Hove Albion. 9.10.2021 07:00
Dagskráin í dag: Undankeppni HM, Tryggvi Snær, golf og Worlds 2021 Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á fjölda leikja í undankeppni HM 2022 í fótbolta ásamt Tryggva Snæ Hlinasyni í spænska körfuboltanum, fjölda golfmóta og að sjálfsögðu Worlds 2021. 9.10.2021 06:00
Myndasyrpa frá jafntefli Íslands: Albert í aðalhlutverki Ísland gerði 1-1 jafntefli við Armeníu í undankeppni HM 2022 í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. Hér að neðan má sjá myndir sem ljósmyndari Vísis tók á leiknum. 8.10.2021 23:16
Haukur og Sigvaldi Björn öflugir í stórsigri Kielce Íslendingarnir í liði Póllandsmeistara Vive Kielce fóru mikinn er liðið vann stórsigur á Chrobry Glagów í kvöld. Haukur Þrastarsson var magnaður en Selfyssingurinn skoraði alls níu mörk í sigri heimamanna. 8.10.2021 22:31