Sextugur fimmtíu barna faðir og forseti félagsins ákvað að stilla sér upp í framlínunni Ronnie Brunswijk spilaði 54 mínútur í 6-0 tapi Inter Moengotapoe gegn Olimpia frá Hondúras í 16-liða úrslitum CONCACAF-keppninnar. Brunswijk hefur ekki verið leikmaður liðsins í meira en áratug en lét það ekki stöðva sig. Hann er forseti félagsins og getur greinilega gert það sem honum sýnist. 23.9.2021 07:00
Framundan í beinni: Haukar í Evrópu og spennandi leikur í Safamýri Það er áhugaverður fimmtudagur framundan á rásum Stöðvar 2 Sport. 23.9.2021 06:01
Ósáttur með slaka byrjun og sagði sína menn hafa átt að fá vítaspyrnu Ole Gunnar Solskjær var ekki sáttur með slaka byrjun sinna manna er Manchester United tapaði 0-1 gegn West Ham United á heimavelli í enska deildarbikarnum í kvöld. 22.9.2021 22:31
Asensio með þrennu í stórsigri Real Real Madríd vann 6-1 stórsigur á Mallorca í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í kvöld. Sigurinn lyfti Real upp á topp deildarinnar. 22.9.2021 22:00
Þægilegt hjá Arsenal | Búið að draga í sextán liða úrslit Öllum sex leikjum kvöldsins í 32-liða úrslitum enska deildarbikarsins er nú lokið. Þá er búið að draga í 16-liða úrslit keppninnar, Arsenal verður þar ásamt Manchester City og fleiri liðum. 22.9.2021 21:31
Milan jafnt Inter á toppnum eftir sigur á Venezia AC Milan vann 2-0 sigur á Venezia í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld. Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tímann á varamannabekk Venezia. 22.9.2021 21:15
Tottenham henti frá sér tveggja marka forystu en slapp fyrir horn Tottenham Hotspur er komið í 16-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Wolves. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og því þurfti vítaspyrnur til að útkljá viðureignina. 22.9.2021 21:10
Chelsea áfram eftir vítaspyrnukeppni Evrópumeistarar Chelsea eru komnir áfram í 16-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir sigur á Aston Villa í vítaspyrnukeppni. 22.9.2021 21:00
Hamrarnir hefndu fyrir tapið um helgina og eru komnir áfram West Ham United vann 1-0 útisigur á Manchester United er liðin mættust í enska deildarbikarnum í kvöld. Þar með sannast gamalkunna kvæðið að lið geti ekki unnið sama mótherja er liðin mætast tvisvar í röð í tveimur mismunandi keppnum. 22.9.2021 20:45
Ólafur Andrés beið lægri hlut í Danmörku og Orri Freyr í Þýskalandi Ólafur Andrés Guðmundsson og liðsfélagar hans í Montpellier máttu sín lítils gegn danska stórliðinu Álaborg í Meistaradeild Evrópu í handbolta, lokatölur 36-28. Sömu sögu er að segja af norska félaginu Elverum sem heimsótti Kiel í Þýskalandi, lokatölur 41-36. 22.9.2021 20:16