Nýr þjálfari Dallas stýrði sókninni er liðið varð meistari fyrir áratug Jason Kidd er nýr þjálfari Luka Dončić og félaga í Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta. Hann stýrði sóknarleik Dallas-liðsins er liðið varð meistari fyrir áratug síðan. 28.6.2021 22:39
Umfjöllun og viðtöl: KR - Stjarnan 1-2 | Stjörnumenn sóttu sigur vestur í bæ Stjarnan var ekkert að svekkja sig á tapinu gegn KA í bikarnum er liðið mætti vestur í bæ og heimsótti KR í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Eftir að lenda undir kom liðið til baka og vann frábæran 2-1 sigur. 28.6.2021 21:45
Stjarnan er þannig félag að það er aðeins litið upp á við „Það bara eiginlega ekkert betra en að vinna á KR vellinum, held ég. Geggjaðar aðstæður, algjört logn og flottur völlur. Þannig þetta er bara geggjað, “ sagði sigurreifur Haraldur Björnsson að loknum 2-1 endurkomu sigri Stjörnunnar á KR í kvöld. 28.6.2021 21:35
Mælti með að Sverrir Páll myndi taka svefntöflu eftir klúður ársins gegn Fylki Sverrir Páll Hjaltested fékk gullið tækifæri til að klára leik Vals og Fylkis í Pepsi Max deild karla. Valur var 1-0 yfir þegar Sverrir Páll fékk mögulega besta færi sumarsins, hann skaut yfir og Fylkir jafnaði skömmu síðar. Lauk leiknum með 1-1 jafntefli. 28.6.2021 18:00
Sjáðu ótrúlega klaufalegt sjálfsmark Spánar Spánn lenti 0-1 undir gegn Króatíu í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu. Markið var einkar klaufalegt. Spánverjar hafa þó jafnað metin og er staðan 1-1 í hálfleik. 28.6.2021 17:01
Spenntur fyrir leiknum gegn KR og reiknar með að bæði lið styrki sig í glugganum Arnar Gunnlaugsson var mjög ánægður með að fá KR í heimsókn í Fossvoginn í stórleik 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Þá taldi Arnar næsta ljóst að bæði lið myndu styrkja sig fyrir leikinn sem fram fer 11. eða 12. ágúst næstkomandi. 28.6.2021 16:30
Montréal staðfestir komu Róberts Orra CF Montréal hefur staðfest kaup félagsins á Róberti Orra Þorkelssyni, varnarmanni Breiðabliks og íslenska U-21 árs landsliðsins. Hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning við félagið sem spilar í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. 28.6.2021 15:35
Þetta er ótrúlega sjarmerandi keppni Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, er spennt fyrir stórleiknum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þegar Valur heimsækir Íslandsmeistara Breiðabliks. 28.6.2021 15:00
Um mögulega lokasókn Fylkis gegn Val: Hann á bara að lesa leikinn og hleypa þessu í gegn Fylkismenn voru verulega ósáttir með að leikur þeirra og Vals að Hlíðarenda í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu hafi verið flautaður af þegar liðið var á leið í álitlega skyndisókn. 28.6.2021 14:00
Þjálfari Glódísar Perlu tekur við Arsenal Kvennalið Arsenal hefur tilkynnt Jonas Eidevall sem nýjan þjálfara liðsins. Hann hefur stýrt liði Rosengård í sænsku úrvalsdeildinni undanfarin ár en landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir spilar með liðinu. 28.6.2021 13:31