Draga fimm leikja bann til baka Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úr gildi úrskurð aga- og úrskurðarnefndar í máli þar sem leikmanni var gert að sæta leikbanni í fimm leiki í keppnum á vegum KSÍ og banni frá Dalvíkurvelli á meðan bannið varir. 26.5.2021 07:02
Dagskráin í dag: Man Utd leikur til úrslita, KR og Þór Þ. geta tryggt sig áfram og undanúrslit í Olís-deild kvenna Það er magnaður miðvikudagur framundan á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. Alls eru 11 beinar útsendingar á dagskrá. 26.5.2021 06:00
Telja varnarleik Vals í molum án Pavels og að einvígið sé að spilast eins og KR vill KR og Valur mætast í Vesturbænum annað kvöld í leik þar sem Íslandsmeistarar KR geta tryggt sæti sitt í undanúrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta. Liðið vann magnaðan sigur á Hlíðarenda í síðasta leik og leiðir 2-1 í einvíginu. 25.5.2021 23:30
Stuðningsmenn slógust í Grindavík Það var mikill hiti í leik Grindavíkur og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta í kvöld. Grindavík knúði fram oddaleik með naumum sigri, 95-92, en í 3. leikhluta leiksins sauð allt upp úr í stúkunni. 25.5.2021 22:45
HK hélt sæti sínu HK hélt sæti sínu í Olís-deild kvenna með naumum sigri á Gróttu í kvöld, lokatölur 19-17. HK vann þar með einvígi liðanna 2-0 og spilar áfram í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. 25.5.2021 22:25
Kría og Víkingur mætast í úrslitum Kría tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum umspils um laust sæti í Olís-deild karla í handbolta. Það gerðu Seltirningar með sex marka sigri á Fjölni í oddaleik, lokatölur 31-25. 25.5.2021 22:25
Njarðvík og Grindavík í úrslit Njarðvík og Grindavík tryggðu sér sæti í úrslitaleik 1. deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Sigurvegari úrslitaleikurinn tryggir sér sæti í Domino´s deild kvenna á næstu leiktíð. 25.5.2021 21:31
Kári Árnason dregur sig úr landsliðshópnum Guðmundur Benediktsson fullyrti nú í kvöld að landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason hefði dregið sig úr íslenska landsliðshópnum sem á að mæta Mexíkó, Færeyjum og Póllandi á næstu dögum. 25.5.2021 20:25
Víkingar í úrslit Víkingur vann í kvöld Hörð Ísafjörð í oddaleik um sæti í úrslitaleik umspils Grill66-deildar karla í handbolta, lokatölur 39-32. 25.5.2021 20:00
Donnarumma líklega á förum þar sem Milan hefur sótt markvörð Ítalska knattspyrnufélagið AC Milan hefur samið við franska markvörðinn Mike Maignan. Þykir það benda til þess að Gianluigi Donnarumma, landsliðsmarkvörður Ítalíu, sé á förum frá félaginu. 25.5.2021 19:16