Fréttamaður

Samúel Karl Ólason

Samúel Karl er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum.

Ný gervigreindargrafík Nvidia strax um­deild

Forsvarsmenn fyrirtækisins Nvidia kynntu í gær nýjung hvað varðar grafík fyrir tölvuleiki. Hún kallast DLSS 5 og er ætlað að bæta lýsingu í tölvuleikjum og gera grafík þeirra raunverulegri. Hún þykir þó strax töluvert umdeild.

Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir á­rásir Pakistana

Ráðamenn í Afganistan segja að rúmlega fjögur hundruð manns hafi dáið og 250 særst í loftárás Pakistana á meðferðarmiðstöð í Kabúl. Pakistanar segja Talibana ljúga og að nákvæmar loftárásir hafi þess í stað verið gerðar á hernaðarlega mikilvæg skotmörk og skotmörk sem tengjast hryðjuverkastarfsemi.

Segjast hafa sent tvo hátt­setta Írani til „dýpstu kima hel­vítis“

Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, hafi verið felldur í loftárás í nótt. Þá segjast Ísraelar einnig hafa banað yfirmanni Basij-sveitanna svokölluðu en það eru sveitir sjálfboðaliða sem heyra undir íranska byltingarvörðinn. Þessar sveitir hafa verið sakaðar um umfangsmikil ódæði gegn mótmælendum í Íran.

Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst

Olíuverð hefur lækkað á mörkuðum í dag og verðbréfavísitölur vestanhafs hafa hækkað. Dagurinn á Wall Street ku vera sá besti frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran.

Stöðvuðu stút með naglamottu

Lögregluþjónar frá Lögreglunni á Suðurlandi, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og úr sérsveit ríkislögreglustjóra veittu um helgina ökmanni sem neitaði að stöðva bíl sínn eftirför. Beita þurfti naglamottu til að stöðva hann á endanum.

Starfs­manna­stjóri Trumps greinist með krabba­mein

Susie Wiles, starfsmannastjóri Donalds Trump í Hvíta húsinu, hefur greinst með krabbamein. Meinið fannst í brjósti hennar og tiltölulega snemma og stefnir hún ekki að taka sér frí frá störfum á meðan hún gengur gegnum meðferð.

Banda­menn taka fá­lega í aðstoðarkröfur Trumps

Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran.

Sjá meira