Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Utanríkisráðuneytið vill ekki veita upplýsingar um það hvort íslenska ríkið sé búið að svara sérstökum spurningalista sem ríkisstjórn Bandaríkjanna sendi á önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og hvernig honum hafi verið svarað, ef svo er. Eðli umræddra upplýsinga og hagsmunir sem þær tengjast mæli gegn opinberun þeirra. 4.9.2026 16:21
Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Dómarinn í málinu gegn Lindsay Clancy ætlar að gera réttarhöldin gegn henni ógild. Sú ákvörðun hefur þó verið sett á ís vegna áfrýjunar lögmanns Clancy til áfrýjunardómstóls. Kviðdómendur hafa ekki komist að niðurstöðu eftir margra daga tilraunir. 4.9.2026 15:33
Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Rússneskur sjálfsprengidróni hæfði í dag höfuðstöðvar úkraínsku leyniþjónustunnar sem kallast Öryggisstofnun Úkraínu (SBU). Forseti Úkraínu segir að drónanum hafi verið miðað á skrifstofu yfirmanns leyniþjónustunnar og að leiðtogum SBU hafi verið skipað að svara fyrir sig með sambærilegum hætti. 4.9.2026 15:06
Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy munu fá enn einn daginn til að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar. Þetta verður sjöundi dagurinn sem þau munu verja í að reyna að ljúka málinu. 4.9.2026 13:32
Ákærður fyrir að brjóta á börnum Saksóknarar í Rúmeníu hafa formlega ákært Andrew Tate fyrir hafa selt ólögráða einstaklinga í mansal, fjárþvætti, kynmök við ólögráða einstakling og fyrir að hafa áhrif á vitni. Tristan bróðir hans hefur einnig verið ákærður fyrir að vera samverkamaður Andrews. 4.9.2026 10:21
Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Meira Star Wars er aldrei slæmt. Næstum því. Það á allavega við Star Wars Zero Company því hér er um að ræða þrususkemmtilegan herkænskuleik sem er frábrugðinn öðru sem maður er vanur í Star Wars heiminum. 4.9.2026 08:46
Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hvatti Repúblikana í erfiðri stöðu fyrir þingkosningarnar í nóvember til að byggja kosningabaráttuna á afrekum hans í embætti. Það er þrátt fyrir mjög svo litlar vinsældir forsetans, en hann hefur einnig heitið því að ferðast víðsvegar um Bandaríkin og berjast fyrir frambjóðendur í um 35 kjördæmum sem gætu ráðið úrslitum hvað varðar stjórn fulltrúadeildarinnar næstu tvö ár. 3.9.2026 23:00
Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Forsvarsmenn leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR) segja umfangsmikla rægingarherferð gegn stofnuninni í gangi. Það er eftir að til skotbardaga kom á milli starfsmanna GUR og starfsmanna Öryggisstofnunar Úkraínu (SBU) á götum Kænugarðs í gær. Vólódímír Selenskí, forseti, hefur fordæmt atvikið, sagt upp einum af forsvarsmönnum SBU og krafist þess að skotbardaginn verði rannsakaður ítarlega. 3.9.2026 19:33
Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Tvenn geimför losnuðu í dag frá móðurskipi sínu nærri Merkúr og hófu lokaáfangann í nærri því áratugslöngu ferðalagi. BepiColombo-verkefnið er á vegum Geimferðastofnunar Evrópu (ESA) og Geimferðastofnunar Japan (JAXA) og er markmið þess að afla frekari upplýsinga um þessa minnstu reikistjörnu sólkerfisins. 3.9.2026 15:29
Kviðdómendur fá síðasta séns Kviðdómendur í málinu gegn Lindsay Clancy hafa reynt að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli hennar í fimm daga. Það hefur ekki borið árangur en búist er við því að í dag fái þeir sinn síðasta séns til að komast að niðurstöðu. Annars verður málinu gegn konunni sem kyrkti þrjú ung börn sín vísað frá dómi. 3.9.2026 10:50