Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Lögregla stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í Hlíðahverfi Reykjavíkur sem keyrði á nánast tvöföldum hámarkshraða. Hraði hans mældist 87 kílómetrar á klukkustund þar sem hæsti leyfilegi hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Málinu var lokið á staðnum með greiðslu sektar. 29.7.2026 18:31
Eldur logaði í Stykkishólmi Eldur logar í einbýlishúsi í miðbæ Stykkishólms. Um er að ræða gamalt timburhús. 29.7.2026 17:59
„Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Þekkt er að, forðum daga, fékk Andrés nóg eftir þrjú tonn af sandi. Hæstvirtur forsætisráðherra er þó greinilega engin sandhrúga því nafnarnir Andrés og Andrés fá ekki nóg af Kristrúnu Frostadóttur eftir frammistöðu hennar í hlaðvarpsviðtali hjá The rest is politics. Hlaðvarpið er breskt og þykir eitt hið virtasta á sínu sviði. 29.7.2026 00:42
Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart „Það þarf ekki að koma á óvart að hún sýni ekki mikil viðbrögð,“ sagði Agnar Már Másson, fréttamaður Sýnar, um viðbrögð Ming Ting Mancel við dómsuppkvaðningu í dag. Að sögn hans hefur skortur á hluttekningu einkennt fas Mancel hingað til en hún hélt uppteknum hætti í dag og sýndi lítil viðbrögð þegar dómur var kveðinn upp. 28.7.2026 22:20
Fyrsta apótek Víkur opnað Íbúar Mýrdalshrepps hafa eignast sitt fyrsta apótek sem verður rekið undir vörumerki Apótekarans. Það mun bjóða upp á alhliða lyfja- og heilbrigðisþjónustu ásamt fjölbreyttu úrvali af vörum. 28.7.2026 21:03
Mjólkurhvít mengun í Sauðá Mengun hefur borist í Sauðá og hefur áin hefur tekið á sig mjólkurhvítan blæ. Ekki er vitað hvaðan mengunin kemur. 28.7.2026 19:25
Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Festi hf. hefur birt afkomu sína á öðrum ársfjórðungi en félagið rekur meðal annars Krónuna, N1, Lyfju og Elko. Aukning var í vörusölu milli ára og hagnaður varð af rekstrinum upp á tæpa 1,3 milljarða. Hækkandi heimsmarkaðsverð olíu virðist hafa áhrif á rekstrarárið 2026 en afkomuspá EBITDA fyrir árið hefur verið lækkuð um 500 milljónir. 28.7.2026 18:49
Skelfur við Landmannalaugar Skjálfti 2,9 að stærð varð norðarlega í Torfajökulsösku, skammt frá Landmannalaugum, klukkan 16:57. Í kjölfarið hafa fylgt örfáir eftirskjálftar. 28.7.2026 18:19
„Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fríða Björk Gunnarsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli í morgun en miklar tafir voru á flugvellinum. „Ég hef aldrei lent í öðru eins. Mér leið eins og ég væri í réttum nema að ég var kindin, ekki smalinn,“ segir Fríða. 24.7.2026 17:42
Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. greina frá því í tilkynningu að farþegum Strætó muni nú vera birtar rauntímaupplýsingar um komutíma strætisvagna af meiri nákvæmni. 24.7.2026 12:12