Generalprufa fyrir Verslunarmannahelgina Búist er við mikilli umferð út úr bænum nú síðdegis, en álag hefur verið á vegum landsins síðustu tvær til þrjár helgar, að sögn Árna Friðleifssonar aðalvarðstjóra umferðadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 22.7.2022 17:04
Sjúkrahúsið á Akureyri sett á óvissustig Sjúkrahúsið á Akureyri hefur verið sett á óvissustig, sem kemur til vegna mönnunarvanda á gjörgæsludeild sem og skorti á hjúkrunarfræðingum á spítalanum öllum. Gjörgæsludeild spítalans er ekki talin í stakk búin til að taka við fleiri sjúklingum eins og staðan er nú. 22.7.2022 13:34
Fjallaböðin á lokastigi hönnunar Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum. 18.7.2022 13:22
Siggi Sig sigurvegari og Landsmóti lokið Fjöldi gesta af Lansdsmóti hestamanna hélt heim á leið í gærkvöldi eftir glæsileg tilþrif í A-flokki gæðinga þar sem Kolskeggur frá Kjarnholtum og Sigurður Sigurðarson fóru með sigur af hólmi. 10.7.2022 11:30
Herra Hnetusmjör tryllti brekkuna á Landsmóti Um sjö þúsund manns eru nú í áhorfendabrekkunni á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu. Blíðskaparveður hefur verið í allan dag, sem var kærkomið eftir rigningu og rok gærdagsins. 8.7.2022 21:03
Stefnir að því að verja titilinn Árni Björn Pálsson er einn afkastamesti afreksknapinn í íslenska hestaheiminum í dag. Hestar undir hans stjórn eru oftar en ekki í úrslitum í flestum keppnisgreinum hestaíþrótta og kynbótahross sýnd með háar hæfileika einkunnir. 8.7.2022 15:13
Vellirnir á floti og dagskrá Landsmóts frestað Fresta þarf dagskrá vegna veðurs á Landsmóti hestamanna sem nú stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu. Leiðindaveður er á svæðinu, rok og rigning. Pollar eru á keppnisvöllunum og aðstæður til sýningarhalds afleitar. 7.7.2022 11:53
Keppti í 32 ára gömlum jakka af pabba sínum Yngsti keppandinn á Landsmóti hestamanna, sem nú stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu, er á tíunda aldursári, eða því sem aldurstakmörk miða við á mótinu. Anna Sigríður Erlendsdóttir er yngst allra, eftir því sem fréttastofa kemst næst. 6.7.2022 12:00
Hestur Kára einn sá elsti sem hefur keppt á Landsmóti „Mér þykir mjög vænt um þennan hest en var hræddur um að hann hefði ekki nægan kraft. Guði sé lof að ég hafði rangt fyrir mér. Ég var mjög stressaður,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og hrossaræktandi, eftir óvenjulega sýningu Stakks frá Halldórsstöðum, hests í hans eigu, og knapa hans Sigurbjörns Bárðarsonar í sérstakri forkeppni í A-flokki á Landsmóti hestamanna á Hellu í gær. 5.7.2022 13:01
Gera ráð fyrir átta til tíu þúsund mótsgestum Von er á þúsundum gesta á Landsmót hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu. „Stemningin er frábær nú þegar,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri LM2022 en mótið stendur yfir alla vikuna. 4.7.2022 11:01