Messi hágrét eftir leik Það var tilfinningarík stund þegar ljóst var að heimsmeistarar Argentínu væru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir 3-2 sigur á Egyptalandi í kvöld. Lionel Messi gat ekki haldið aftur af tárunum. 7.7.2026 20:17
Elías Már sárþjáður og fór af velli Óttast er að Elías Már Ómarsson hafi orðið fyrir slæmum meiðslum í leik Víkings við Ungverjalandsmeistara Györ í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann hlaut aðhlynningu í um fimm mínútur áður en hann fór meiddur af velli. 7.7.2026 19:51
Lygilegur viðsnúningur Argentínu Argentína vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur á Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM í Atlanta í Bandaríkjunum. Ríkjandi heimsmeistarar skoruðu þrjú mörk á 15 mínútum til að snúa leiknum á haus. 7.7.2026 18:05
Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Pólitísk afskipti af yfirstandandi heimsmeistaramóti í fótbolta einskorðast ekki við Hvíta húsið. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hafði áhrif á leiktíma enska landsliðsins við Mexíkó ef marka má breska fjölmiðla. 7.7.2026 07:32
Dagskráin í dag: Ungverskir meistarar í Víkinni Víkingur mætir ungversku meisturunum í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á heimavelli í kvöld. Sá leikur verður í beinni á Sýn Sport Ísland. 7.7.2026 06:01
Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Carlo Ancelotti mun áfram stýra landsliði Brasilíu þrátt fyrir fall liðsins úr leik á HM karla í fótbolta fyrir Noregi í 16-liða úrslitum. 6.7.2026 23:31
Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Franska knattspyrnusambandið hefur áfrýjað til FIFA um að fella úr gildi gult spjald sem Michael Olise, kantmaður franska liðsins, fékk í sigri á Paragvæ í 16-liða úrslitum HM á laugardaginn var. 6.7.2026 22:47
Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Sérfræðingum í HM kvöldi á RÚV er lítt skemmt yfir ákvörðun FIFA að fresta leikbanni Folarin Balogun, leikmanns bandaríska landsliðsins, fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum mótsins í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson segir trúðasamkomu vestanhafs. 6.7.2026 22:42
Martínez hættur með portúgalska landsliðið Roberto Martínez hefur staðfest að hann muni láta af störfum sem þjálfari Portúgals eftir að liðið féll úr leik gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM í kvöld. 6.7.2026 22:16
Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Spánn komst í kvöld áfram í 8-liða úrslit á HM karla í fótbolta eftir dramatískan 1-0 sigur á Portúgal í slag um Íberíuskaga í Dallas í Texas. Mikel Merino var hetja Spánverja í blálok leiks. 6.7.2026 21:00