Nýju fötin keisarans og „óráð“ forsetans Grein bandaríska sagnfræðingsins og blaðamannsins Anne Applebaum, „Allir nema Trump skilja hvað hann hefur gert“ sem er að finna undir „Umræðan“ á Vísi.is er lestrar virði. Skoðun 22.3.2026 09:01
Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana. Erlent 22.3.2026 08:35
Íhugar að draga úr hernaði í Íran Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Bandaríkjaher nálægt því að ná markmiðum sínum í Íran, og segist huga að því að draga úr hernaði þar sem hófst í lok síðasta mánaðar. Erlent 21.3.2026 08:06
Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Forstjóri bandarísku miðstöðvarinnar gegn hryðjuverkum hefur sagt af sér vegna stríðsins í Íran. Hann hvetur forsetann til að snúa við blaðinu. Erlent 17. mars 2026 20:32
„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum. Erlent 17. mars 2026 15:43
„Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti þegar hann ræddi við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær. Þúsundir voru án rafmagns á Kúbu í gær, sem hefur sætt miklum þrýstingi frá stjórnvöldum vestanhafs. Erlent 17. mars 2026 07:46
Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Susie Wiles, starfsmannastjóri Donalds Trump í Hvíta húsinu, hefur greinst með krabbamein. Meinið fannst í brjósti hennar og tiltölulega snemma og stefnir hún ekki að taka sér frí frá störfum á meðan hún gengur gegnum meðferð. Erlent 16. mars 2026 16:16
Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. Erlent 16. mars 2026 15:49
Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds. Erlent 16. mars 2026 06:38
Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Stjórnarformaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna hótar að svipta fjölmiðla leyfinu eftir að bandarískt dagblað birti frétt um að Íranir hefðu gert árás á bandarískar herflugvélar í Sádí-Arabíu. Trump-liðar hafa lýst mikilli óánægju vegna umfjöllunar fjölmiðla um stríðið í Íran. Erlent 15. mars 2026 17:56
Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans. Erlent 14. mars 2026 20:41
Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Leikmenn íranska karlalandsliðsins í fótbolta hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að enginn geti bannað þeim að keppa á HM 2026. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að ef til vill væri betra að Íranir héldu sig heima þegar HM fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Fótbolti 14. mars 2026 11:00
Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Donald Trump Bandaríkjaforseta er mikið í mun að karlmenn í ríkisstjórn sinni klæðist ákveðnu skómerki sem er í miklu uppáhaldi hjá forsetanum. Svo annt er honum um skótískuna í Hvíta húsinu að menn eru farnir að óttast að láta sjást í öðru, jafnvel þegar skórnir passa ekki einu sinni. Erlent 14. mars 2026 08:32
Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Forseti Kúbu segir ríkisstjórn landsins eiga í viðræðum við ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum. Þessum viðræðum sé ætlað að bæta samskipti ríkjanna og finna lausnir á því hvernig þau geti unnið saman. Bandaríkjamenn hafa komið í veg fyrir olíuflutninga til Kúbu og hefur verulega slæmt efnahagsástand þar versnað til muna. Erlent 13. mars 2026 14:51
Sigurvíma Trump Ég spyr alla þá er þekkja innviðu, sögu og katastrófur plánetunnar. Hvernig stendur á því að bandarískir forsetar virðast aldrei læra neitt af sögunni, hvað þá eigin sögu? Þeir þurftu að lúffa frá vonlausu stríði í Kóreu. Skoðun 13. mars 2026 14:02
Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins telur að núverandi Bandaríkjastjórn vilji sundra og veikja Evrópu. Evrópuríki ættu að bregðast við saman í stað þess að reyna að eiga við Bandaríkin hvert og eitt. Erlent 13. mars 2026 08:42
Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Bandaríkjaforsetanum Donald Trump hefur snúist hugur og segir hann nú að það sé ekki viðeigandi fyrir íranska landsliðið að mæta á HM í sumar. Fótbolti 12. mars 2026 18:00
Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. Lífið 12. mars 2026 07:00
Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. Erlent 11. mars 2026 14:48
Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur. Viðskipti erlent 11. mars 2026 10:32
Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Bandaríkjaher segist hafa grandað sextán skipum sem leggja tundurdufl í eigu Írana. Herinn birti myndskeið af árásunum. Erlent 10. mars 2026 23:14
Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. Erlent 10. mars 2026 13:39
Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, vill halda Íslandi utan Evrópusambandsins, þar sem innganga myndi veikja samningsstöðu Bandaríkjanna gagnvart Íslandi hvað varðar viðskipti og koma niður á varnarmálum Bandaríkjanna. Bandarískur ráðgjafi breska stjórnmálamannsins Nigel Farage, formanns breska flokksins Reform, er sagður hafa komið tvisvar sinnum til Íslands á þessu ári. Innlent 10. mars 2026 09:05
Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hringdi í Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, í gær og ræddu þeir saman í klukkutíma. Meðal umræðuefna voru stríðið gegn Íran, Venesúela, staðan á olíumarkaði og stríð Rússa í Úkraínu. Erlent 10. mars 2026 08:10