Akstursíþróttir

Fréttamynd

Í tómu tjóni og leita logandi ljósi að liðs­stjóra

Lið Aston Martin í Formúlu 1-kappakstrinum hefur átt í miklum vandræðum í upphafi yfirstandandi tímabils og leitar nýs liðsstjóra (e. team principal). Stjórnendur eru sagðir hafa reynt við stjóra Audi sem og fyrrum yfirmann Red Bull. Sá fyrrnefndi sé líklegri til að taka við stjórnartaumunum.

Formúla 1
Fréttamynd

Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í For­múlu 1

Hinn nítján ára gamli Andrea Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes sótti sinn fyrsta sigur á Formúlu 1 ferlinum í Kína kappakstrinum í morgun. Liðsfélagi hans George Russell varð annar og sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hjá Ferrari náði kærkomnu sæti á verðlaunapalli.

Formúla 1
Fréttamynd

Verstappen tikkar af golulistanum

Max Verstappen, fjórfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og ökuþór fyrir Red Bull, er sérlega spenntur fyrir því að taka þátt í 24 tíma þrekkappakstrinum á Nürburgring í vor.

Formúla 1
Fréttamynd

Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant

Mercedes ökumennirnir George Russell og Kimi Antonelli voru sneggstir í tímatöku fyrir fyrstu Formúlu 1 keppni ársins í Ástralíu. Isack Hadjar hjá Red Bull var þriðji en liðsfélagi hans, Max Verstappen, klessti út í kant. 

Formúla 1
Fréttamynd

Keppnir í hættu vegna stríðsins

Keppnir í Formúlu 1 kappakstrinum eru í hættu vegna yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum. Keppnir eiga að fara fram í Barein og Sádi-Arabíu í næsta mánuði en alls óvíst að þær geti farið fram.

Formúla 1
Fréttamynd

Stórir íþrótta­viðburðir í hættu vegna á­taka í Mið-Austur­löndum

Forráðamenn Formúlu 1 mótaraðarinnar eru væntanlega stöðugt að fylgjast með þróun mála varðandi stríðsátök sem brotist hafa út í Mið-Austurlöndum. Stórir íþróttaviðburðir, sem meðal annars stórstjörnurnar Cristiano Ronaldo og Lionel Messi taka þátt í, eru í hættu á að geta ekki farið fram sökum ástandsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Hamilton skýtur fast á and­stæðinga sína

Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 heldur nú inn í sitt tuttugasta tímabil í mótaröðinni og í færslu á samfélagsmiðlum í dag lítur hann yfir farinn veg og þakkar þeim sem efuðust um hann og reyndu að slá niður.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton ætlar ekki að bruna

Sjónvarpsstjarnan og athafnakonan Kim Kardashian og kappaksturskappinn Lewis Hamilton ætla ekki að flýta sér um of meðan þau feta sín fyrstu skref í sambandi sínu. Parið er sagt passa vel saman. 

Lífið
Fréttamynd

Komst við er hann ræddi Schumacher

Andy Wilman, fram­leiðandi, komst við er hann ræddi ör­lög þýska ökuþórsins Michael Schumacher sem hann hafði kynnst í gegnum störf sín. Wilman sagði ör­lög Schumacher­s dapur­leg, hann hefði gert svo mikið fullur heilsu í næsta kafla síns æviskeiðs eftir For­múlu 1 ferilinn.

Formúla 1
Fréttamynd

Jordan lagði NASCAR

Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan náði sínu fram þegar NASCAR-lið hans gerði sátt við keppnishaldarann fyrr í þessum mánuði. Þar með var bundinn endi á málaferli liðsins gegn NASCAR sem reyndust vandræðaleg fyrir alla málsaðila.

Sport
Fréttamynd

Sex um borð í einka­þotu sem hrapaði

Sex voru um borð í einkaflugvél sem brotlenti í lendingu á Statesville-flugvellinum í North-Carolina í Bandaríkjunum. Samkvæmt erlendum miðlum var kappakstursmaðurinn Greg Biffle um borð ásamt eiginkonu sinni og tveimur börnum. Það hefur þó ekki verið staðfest. 

Erlent