Þýskaland

Þýskaland

Höfuðborg: Berlín. Mannfjöldi: 84,4 milljónir (2025). Flatarmál: 357.592 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Sátu um tóman banka í sex tíma

Umsátri um banka í þýska bænum Sinzig lauk eftir um sex klukkustundir. Þegar lögregluþjónar fóru inn í bankanna fundu þeir eingöngu tvo starfsmenn sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu. Ræninginn eða ræningjarnir virðast ekki hafa verið inni í bankanum og eru því taldir ganga lausir.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Um­sátur í Þýska­landi: Banka­rán varð að gíslatöku

Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnar­taumunum

Íran hefur ekki lengur einn stjórnanda sem tekur úrslitaákvarðanir um hvaða stefnu ríkið tekur. Herforingjar og aðrir valdamiklir menn sem tengjast flestir byltingarverði Íran eru nú sagðir taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn veitir svo blessun sína.

Erlent
Fréttamynd

Merz segir Írani spila með Banda­ríkja­stjórn

Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi.

Erlent
Fréttamynd

Gagn­rýna tví­skinnung Vance í Ung­verja­landi

Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar.

Erlent
Fréttamynd

Karl­menn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði

Karlmenn í Þýskalandi þurfa nú leyfi frá þýska hernum ef þeir ætla að dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði. Breytingarnar tóku gildi í byrjun árs en hafa ekki ratað í kastljós fjölmiðla fyrr en nú. Á meðan herskylda er ekki í gildi líta stjórnvöld þó ávallt svo á að leyfið sé veitt, en herskylda tekur vissulega gildi á ný á næsta ári.

Erlent
Fréttamynd

Hera verður ást­kona JFK

Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Tónlistarpar á von á sumarbarni

Söngkonan Ásdís María Viðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Jökull Logi Arnarsson eiga von á barni. Parið hefur verið saman í þrjú ár og er búsett í Berlín síðustu ár þar sem þau hafa gert það gott í tónlistarbransanum.

Lífið
Fréttamynd

Banda­menn taka fá­lega í aðstoðarkröfur Trumps

Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að grípa til hernaðar­að­gerða gegn Íran

Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna.

Erlent
Fréttamynd

Mega ekki skil­greina AfD öfgasamtök í bili

Þýska leyniþjónustan má ekki skilgreina Valkost fyrir Þýskaland (AfD) sem öfgahægriflokk áður en niðurstaða fæst í dómsmál sem flokkurinn höfðaði til að koma í veg fyrir það. Þetta er niðurstaða dómstóls í Köln.

Erlent
Fréttamynd

Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfis­bundna frænd­hygli“

Fulltrúar og frambjóðendur fjarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland liggja nú undir ámæli fyrir að hygla vinum og vandamönnum í aðdraganda sambandslands- og sveitarstjórnarkosninga á árinu. Flokkurinn segir ásakanirnar ýmis stoðlausar eða ýktar.

Erlent
Fréttamynd

Mildari tónn en sama inni­haldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektar­kennd og skömm“

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Evrópu tilheyra hvort öðru og eiga samleið. Í ræðu sem hann hélt í morgun á öryggisráðstefnunni í München gagnrýndi hann þó Evrópu vegna aðgerða gegn veðurfarsbreytingum, stefnu í orkumálum og þess hvernig haldið er á spöðunum varðandi málefni innflytjenda, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent
Fréttamynd

Lokar hringnum eftir tíu ár er­lendis

Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið.

Lífið
Fréttamynd

Hætta ó­vænt við tónleikaferðalög sín

Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu.

Tónlist