Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur. Erlent 30.12.2025 09:41
Ógnaði öryggi hermanna með Signal-spjalli Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ógnaði öryggi hermanna með því að ræða yfirvofandi hernaðaraðgerðir gegn Hútum í Jemen. Það gerði hann í einkasíma sínum gegnum samskiptaforritið Signal, en blaðamaður var í einum hópnum sem Hegseth var í og var honum bætt í hópinn fyrir mistök. Erlent 4.12.2025 21:32
Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Leiðtogar Húta í Jemen hafa gefið til kynna að þeir séu hættir árásum á bæði Ísrael og fraktskip á Rauðahafi. Er það vegna óstöðugs vopnahlés á Gasaströndinni, samkvæmt bréfi sem Qassam stórfylkin, hernaðarvængur Hamas, birti nýverið. Erlent 11.11.2025 14:56
Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður yfir því hver erfiðlega honum hefur gengið að binda enda á átök sem hann hafði heitið að stöðva fljótt. Fyrir forsetakosningarnar í fyrra hafði forsetinn heitið því að stöðva átökin í Úkraínu og á Gasaströndinni mjög fljótt. Erlent 10. maí 2025 15:25
Misstu aðra herþotu í sjóinn Áhöfn bandaríska flugmóðurskipsins USS Harry S. Truman hefur misst tvær herþotur í sjóinn á rúmri viku. F/A-18 Super Hornet orrustuþota féll í Rauðahafið í gær, strax eftir lendingu en tveir sem voru um borð í þotunni þurftu að skjóta sér úr henni og var þeim bjargað úr sjónum. Erlent 7. maí 2025 07:19
Ætla að hernema Gasaströndina Ríkisstjórn Ísrael samþykkti í morgun að hernema Gasaströndina og halda svæðinu um óákveðinn tíma. Auka á árásir á svæðið og hafa tugir þúsunda varaliðsmanna verið kallaðir til herþjónustu. Erlent 5. maí 2025 07:58
Allt í rugli á Rauðahafi Orrustuþota bandaríska hersins, af gerðinni F/A-18 Super Hornet, féll í sjóinn og sökk niður á botn Rauðahafs. Bandaríski sjóherinn greinir frá þessu, en þetta er í þriðja skiptið á skömmum tíma sem mál tengd sama flugmóðurskipinu komast í fréttir. Erlent 28. apríl 2025 22:18
Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Bandaríkjaforseti segist standa með varnarmálaráðherranum eftir að annað lekamál kom upp. Ráðherrann lak trúnaðarupplýsingum um árásir Bandaríkjahers til eiginkonu sinnar, bróður og lögfræðings. Erlent 21. apríl 2025 16:23
Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, greindi frá upplýsingum um árás Bandaríkjahers á Húta í Signal-spjalli með konu sinni, bróður og lögfræðing. Þetta er í annað sinn sem hann deilir óvarlega viðkvæmum hernaðarupplýsingum á forritinu. Erlent 20. apríl 2025 22:56
Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Minnst 74 eru taldir af eftir loftárás Bandaríkjahers á eldsneytisgeymslur Húta við Ras Isa höfnina í Jemen í morgun. Árásin er sú mannskæðasta síðan herinn hóf að auka árásir á herstöðvar Húta í fyrra. Erlent 19. apríl 2025 00:02
Mikilvægur fundur með Íran framundan Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heimsótti Donald Trump, forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsið. Þeir ræddu meðal annars tollgjöld forsetans, fund Bandaríkjamanna við Íran og átök á milli Ísrael og Gasa. Erlent 7. apríl 2025 21:58
Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að senda ætti töluverðan herafla til Mið-Austurlanda. Bandaríkjamenn hafa gert umfangsmiklar loftárásir gegn Hútum í Jemen að undanförnu og þá hefur spenna milli ríkisstjórnar Donalds Trump og klerkastjórnarinnar í Íran. Erlent 2. apríl 2025 12:14
Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Talsmenn Hvíta hússins hafa síðustu daga varið miklu púðri í að gagnrýna blaðamann sem var fyrir mistök bætt inn í spjallhóp margra af æðstu ráðamönnum Bandaríkjanna. Þar ræddu þeir yfirvofandi árásir gegn Hútum í Jemen og deildu upplýsingum um árásirnar sín á milli en búið er að birta öll samskiptin úr hópnum. Erlent 26. mars 2025 18:22
Bættu blaðamanni óvart í Signal-hóp um árásir á Húta Svo virðist sem Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi fyrir mistök bætt blaðamanni inn í spjallhóp þar sem hann, JD Vance varaforseti, Pete Hegseth varnarmálaráðherra og fleiri töluðu um hvort Bandaríkin ættu að hefja umfangsmiklar árásir á Húta í Jemen og hvernig. Erlent 24. mars 2025 18:53
Stefna á víðtækar ferðatakmarkanir Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna. Erlent 16. mars 2025 22:14
„Yfirþyrmandi banvænt afl“ Bandaríkjanna varð fleiri leiðtogum Húta að bana Umfangsmiklar loftárásir Bandaríkjanna á skotmörk í Jemen í gærkvöld urðu nokkrum leiðtogum Húta að bana að sögn þjóðaröryggisráðgjafa. Donald Trump Bandaríkjaforseti hét því að beita Húta „yfirþyrmandi banvænu afli“ þar til þeir létu af árásum sínum á skip á Rauðahafi. Erlent 16. mars 2025 15:11
Gera umfangsmiklar árásir á Húta: „Tími ykkar er liðinn“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skipaði her sínum í gærkvöldi að hefja umfangsmiklar loft- og eldflaugaárásir gegn Hútum í Jemen. Hét hann því að beita áfram „yfirþyrmandi banvænu afli“ þar til Hútar létu af árásum sínum á skip á Rauðahafi og gagnrýndi hann Joe Biden, forvera sinn, fyrir meintan veikleika. Erlent 16. mars 2025 07:44
Vörpuðu fimmtíu sprengjum á þrjú skotmörk í Jemen Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á Jemen. Eru þessar árásir sagðar viðbrögð við dróna- og eldflaugaárásum Húta á Ísrael á undanförnum vikum. Fyrr í vikunni vörpuðu Bandaríkjamenn sprengjum á skotmörk sem þeir segja í eigu Húta. Erlent 10. janúar 2025 16:29
Hóta Hútum sömu „aumu örlögum“ og Hamas og Hezbollah Hætti Hútar ekki að skjóta eldflaugum að Ísrael er hætt við því að þeir hljóti „sömu aumu örlög“ og Hamas, Hezbollah eða Bashar al-Assad. Þetta sagði sendiherra Ísrael hjá Sameinuðu þjóðunum í dag og kallaði hann það síðustu viðvörun Húta, sem stjórna stórum hluta Jemen og njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran. Erlent 30. desember 2024 23:24
Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, var staddur á flugvellinum í Sanaa í Jemen í gær þegar Ísraelsmenn gerðu loftárás á völlinn. Erlent 27. desember 2024 07:17
Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Tveir flugmenn sjóhers Bandaríkjanna lifðu af þegar herþota þeirra var skotin niður yfir Rauðahafi í nótt. Svo virðist sem þotan hafi verið skotin niður af Bandaríkjamönnum sjálfum og var það í kjölfar loftárásar gegn Hútum í Jemen. Erlent 22. desember 2024 07:38
„Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims. Erlent 17. október 2024 11:35
„Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Viktor Bout, alræmdur vopnasali sem gekk lengi undir nafninu „Sölumaður dauðans“ er aftur farinn að selja vopn, tæpum tveimur árum eftir að honum var sleppt úr fangelsi í Bandaríkjunum. Honum var sleppt í fangaskiptum en Rússar slepptu þá körfuboltakonunni Brittney Griner, sem hafði verið dæmd í níu ára fangelsi fyrir að vera með smávægilegt magn af hassolíu í farangri sínum. Erlent 7. október 2024 20:03
Ísrael gerir loftárásir á Jemen Ísraelski herinn hefur greint frá því að gerðar hafi verið loftárásir í Jemen. Skotmörkin hafi verið athafnasvæði Húta, sem ísraelski herinn segir að hafi verið notuð meðal annars til að flytja inn hergögn frá Íran. Erlent 29. september 2024 16:20