Innlent
170 171 172 173 174 175 176 177 178 … 334 ›
Jólaljós í nóvember Margir fylgdust með þegar kveikt var á hæsta jólatré sem fellt hefur verið á Íslandi við Blómaval í gærdag. Flestir gestanna voru ánægðir með að fá jólavarning í verslanir í nóvember en sumum fannst jólalögin mega bíða um sinn. Innlent 4.11.2006 21:03
Segja fjárveitinguna ekki eftirlitslausa Heilbrigðisráðherra segir fráleitt að halda því fram að ekkert eftirlit sé haft með fjárveitingu ríkisins til dvalar- og hjúkrunarheimila. Forstjóri Hrafnistu tekur undir og segir enga vankanta á þjónustu við aldraða á dvalarheimilum. Innlent 4.11.2006 21:03
Áskilur sér rétt til að endurskoða varnarsamninga Þórunn Sveinbjarnardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd, segir flokk sinn áskilja sér rétt til að endurskoða frá grunni það sem núverandi ríkisstjórn hefur samið um við Bandaríkin um varnarmál Íslands. Innlent 4.11.2006 21:03
Segir söluferlið vera óvandað Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir það hafa verið mistök hjá meirihluta í borgarstjórn að fallast á söluna á hlut borgarinnar í Landsvirkjun á þeim forsendum sem lágu fyrir. Innlent 4.11.2006 21:03
Mýrin eykur sölu á sviðum „Eftir að sýningar á Mýrinni hófust í kvikmyndahúsum hefur sviðasala hjá okkur margfaldast,“ segir Bjarni Geir Alfreðsson, eigandi veitingasölunnar Fljótt og gott á BSÍ við Vatnsmýrarveg. Erlendur Sveinsson, lögreglumaður og aðalsöguhetja Mýrarinnar, fer oft á BSÍ og kaupir sér svið í myndinni. Innlent 4.11.2006 21:02
Byggja 174 ný hjúkrunarrými Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra tilkynnti í gær að 174 ný hjúkrunarrými yrðu byggð á næstu fjórum árum, til viðbótar við þau tvö hundruð sem byggja á í Reykjavík. Ákvörðunin byggist á niðurstöðu nefndar stjórnvalda og fulltrúa Landssambands eldri borgara. Innlent 4.11.2006 21:03
Kaupin gagnrýnd Íslandspóstur, sem er að öllu leyti í ríkiseigu, á fyrst og fremst að einbeita sér að opinberu markmiði sínu en ekki að kaupa sig inn á samkeppnismarkað einkavæddra fyrirtækja í óskyldum rekstri. Þetta segir Gunnar Gylfason, framkvæmdastjóri ATH markaðs- og prentlausna, um kaup Íslandspósts á prentfyrirtækinu Samskiptum sem gengið var frá 30. október síðastliðinn. Innlent 4.11.2006 21:02
Eiðakirkja 120 ára í dag Í dag, sunnudaginn 5. nóvember, verður þess minnst að 120 ár eru liðin frá vígsluafmæli Eiðakirkju. Í tilefni þess verður hátíðarmessa í kirkjunni kl. 14 þar sem hr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup Hólastiftis, predikar og Jóhanna Sigmarsdóttir sóknaprestur þjónar fyrir altari. Innlent 4.11.2006 21:02
Vill úttekt á rafmagnsverði Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, vill að áhrif af nýrri skipan raforkumarkaðarins verði athuguð með tilliti til breytinga á rafmagnsverði. Innlent 4.11.2006 21:03
Hertar reglur um handfarangur Nýjar reglur um hvað má ferðast með í handfarangri í öllum löndum EFTA og Evrópusambandsins taka gildi á morgun, 6. nóvember. Þá verður allur vökvi, sem farþegar hafa í handfandfarangri, að vera í glærum poka og hver eining umbúða má ekki rúma meira en 100 millilítra af vökva. Innlent 4.11.2006 21:02
Óbreytt staða í efstu sætum Kristján L. Möller, Einar Már Sigurðarson og Lára Stefánsdóttir verða áfram í þremur efstu sætum Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Prófkjör Samfylkingarinnar í kjördæminu fór fram í gær en 1.878 tóku þátt í prófkjörinu, tæplega 70 prósent af 2.834 sem voru á kjörskrá. Innlent 4.11.2006 21:02
Hundaganga í miðbænum Hvorki hundar né menn létu votviðrið aftra sér í gær þegar árleg ganga Hundaræktarfélags Íslands niður Laugaveginn fór fram. Innlent 4.11.2006 21:03
Skoða skipasmíðastöð í Chile Fulltrúar íslenskra stjórnvalda halda í dag til Chile til þess að kanna áreiðanleika skipasmíðafyrirtækisins Asmar, sem átti lægsta tilboðið í gerð nýs varðskips. Tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar, verkefnisstjóri Ríkiskaupa og danskur verkfræðingur, sem verið hefur íslenskum yfirvöldum innan handar við undirbúning útboðsins, munu skoða aðstæður Asmar í Talcahuano í Chile í sex daga. Innlent 4.11.2006 21:03
Siv og Samúel eru í efstu sætunum Samúel Örn Erlingsson, íþróttafréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu, verður í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi í kosningunum næsta vor. Þrjú sóttust eftir öðru sætinu á listanum auk Samúels Arnar; Una María Óskarsdóttir, Gísli Tryggvason og Þórarinn Sveinsson. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra leiðir listann en hún var sjálfskipuð í efsta sætið þar sem enginn bauð sig fram á móti henni. Innlent 4.11.2006 21:02
Viðvörun vegna fjársvikamáls Að minnsta kosti tveir Íslendingar hafa lent í umfangsmikilli fjársvikastarfsemi á netinu sem teygir anga sína um alla Evrópu. Ríkislögreglustjóri gaf út viðvörun vegna þessa á föstudag. Vísvitandi þátttaka í svikum á borð við þessi varðar við fjársektir og jafnvel fangelsi. Innlent 4.11.2006 21:03
Sjö felldir í loftárásum Ísraelskir hermenn drápu sjö Palestínumenn í loftárásum og bardögum á Gaza í gær. Sex þeirra voru herskáir meðlimir Hamas-samtakanna. Ekki sér fyrir endann á átökum Ísraelsmanna og palestínskra eldflaugasveita sem hófust fyrir fimm dögum. Erlent 4.11.2006 21:02
Gunnar Svavarsson sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi Nú rétt í þessu bárust lokatölur í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi. Niðurstaðan varð sú að Gunnar Svavarsson hlaut 1376 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júlíusdóttir 2268 atkvæði í 1.-2. sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir hlaut 2353 atkvæði í 1.-3. sæti. Innlent 5.11.2006 01:07
Skíðasvæði í Oddsskarði opnað Skíðasvæðið í Oddsskarði var opnað í gær. Um þrjátíu karlar og konur komu til að renna sér, en að sögn staðarhaldara, Dagfinns Ómarssonar, var búist við dræmri mætingu vegna þess að á sama tíma fór fram fótboltamót í Fjarðabyggð. Nægur snjór er í fjöllunum og veður gott. Snjórinn er sagður góður miðað við árstíma og færið gott. Innlent 4.11.2006 21:03
Gunnar leiðir á ný Nú rétt í þessu bárust tölur í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi. Gunnar Svavarsson hefur hlotið 1245 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júlíusdóttir 2061 atkvæði í 1.-2. sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur hlotið 2155 atkvæði í 1.-3. sæti. Innlent 5.11.2006 00:01
Þórunn Sveinbjarnardóttir efst í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi Breytingar hafa orðið á röð efsta fólks í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi. Þórunn Sveinbjarnardóttir leiðir nú listann og hefur hlotið 723 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júlíusdóttir 1.137 atkvæði í 1.-2. sæti og Gunnar Svavarsson 875 atkvæði í 1.-3. sæti. Innlent 4.11.2006 22:34
Gunnar Svavarsson leiðir prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi eftir 2. talningu Nýjar tölur um dreifingu atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi voru að berast frá formanni kjörstjórnar Halldóri S. Guðmundssyni. Hafa atkvæði fallið þannig að Gunnar Svavarsson hefur hlotið 683 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júlíusdóttir 1.137 atkvæði í 1.-2. sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur hlotið 1.258 atkvæði í 1.-3. sæti. Innlent 4.11.2006 20:56
4.996 kusu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Kosningum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi er nú lokið. Talið verður á morgun og áætlað er að fyrstu tölur berist um 18:00 á morgun, sunnudag. Innlent 4.11.2006 20:17
4151 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi kl 19. 4151 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi kl 19. Að sögn Halldórs S. Guðmundssonar formanns kjörstjórnar munu fyrstu tölur berast um kl. 20.30. 1900 félagar í Samfylkingunni kusu í síðusta prófkjöri og telst þetta því mjög góð þátttaka. Innlent 4.11.2006 19:44
Ekki mesta hætta á vopnuðum árásum Yfirmaður friðarrannsóknarstofnunarinnar í Stokkhólmi segir að í stað þess að hugsa um hvað geti komið í staðinn fyrir samstarf Íslendinga við Bandaríkjamenn í varnarmálum eigi að leita leiða til að styrkja það. Hún segir öryggisógnir gagnvart Íslandi síður tengdar vopnbeitingu en frekar vera á sviði efnahags- og umhverfismála. Innlent 4.11.2006 18:27
Kristján L. Möller sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi Kristján L. Möller sigraði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, Einar Már Sigurðarson var í öðru sæti og Lára Stefánsdóttir lenti í því þriðja. Innlent 4.11.2006 17:59
Vel á fimmta þúsund kosið í prófkjöri samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Vel á fimmta þúsund manns voru búnir að kjósa kl. 17 í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Innlent 4.11.2006 17:53
Flokkurinn þarf að kynna sín góðu verk Samúel Örn Erlingsson íþróttafréttamaður fékk langflest atkvæði í annað sætið á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi í dag. Samúel segir flokkinn þurfa að kynna betur sín góðu verk. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra var sjálfkjörin í forystusætið. Innlent 4.11.2006 17:45
Tæplega 2300 kosið í prófkjöri samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi Samkvæmt nýjustu tölum úr prófkjöri samfylkingarinnar í suðvesturkjördæmi höfðu 2289 kosið klukkan fjögur í dag. Innlent 4.11.2006 17:04
Tæplega 3000 kosið í prófkjöri Samfylkingar í Suðurkjördæmi Tæplega 3000 manns voru búnir að kjósa kl. 15. í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Innlent 4.11.2006 15:46
KB Banki færir Krabbameinsfélagi Íslands nýtt tæki til greiningar á brjóstakrabbameini Í dag færði KB banki Krabbameinsfélagi Íslands andvirði nýs stafræns röntgenmyndatækis, til leitar að brjóstakrabbameini, að gjöf. Nýrri tækni er ætlað að leysa eldri röntgenmyndabúnað af hólmi og gera forvarnarstarf vegna brjóstakrabbameins kvenna auðveldara og árangursríkara. Innlent 4.11.2006 15:42