Besta deild karla

Fréttamynd

„Hver einasti maður á­kveðið að við færum beint niður“

„Ég held að hver einasti maður sem fylgdist með hafi ákveðið að við færum beint niður aftur. Það var klárlega ekki planið og við héldum okkur sannfærandi í deildinni,“ segir Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur, sem þvert á allar spár mun í versta falli enda í 6. sæti Bestu deildarinnar í ár.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Árni Gautur heiðraður af ÍA

Fyrir leik ÍA og KR í Bestu deild karla í fótbolta í gær veitti ÍA, Árna Gauti Arasyni heiðursviðurkenningu fyrir glæsilegan knattspyrnuferil og framlag hans til knattspyrnunnar á Akranesi.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Fannst við bara baka þá“

Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var mjög ánægður með frammistöðuna og stigin þrjú þegar Þór vann mikilvægan 1-0 sigur gegn FH á VÍS vellinum í síðustu umferð Bestu deildar karla fyrir skiptingu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóst­kassanum“

„Þetta var frábært, mér fannst við eiga þetta skilið. Við unnum fyrir þessu inn á vellinum. Þetta var bara gríðarlega mikilvægt, líka í ljósi hina úrslitanna þá var þetta ennþá mikilvægara. Þá líka bara að fá smá trú í liðið að ef við erum að sinna okkar að þá vinnum við leiki, þannig þetta var bara mjög sætt,“ sagði Ásgeir Sigurgeirsson leikmaður KA eftir 2-1 sigur gegn Breiðablik í dag. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Sýndum karakter og vilja“

„Ég mjög ánægður, mér fannst við gera hlutina ágætlega á köflum en svo datt þetta niður inn á milli en það sem við sýndum varðandi karakter og vilja í að sigla þessu heim er það sem stendur upp úr,“ sagði Eiður Smári Guðjonsen þjálfari KA eftir 2-1 sigur á Blikum í dag. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni

Rúnar Kristinsson gat ekki kvartað yfir því að hafa náð í stig í Víkinni í dag þegar hans menn í Fram gerðu 2-2 jafntefli í 22. umferð Bestu deildar karla. Fram komst yfir í seinni hálfleik en héldu ekki forskotinu en sátu á stiginu eftir að hafa lent manni undir.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Fred fram­lengir við Fram til 2028

Fred Saraiva hefur framlengt samning sinn við Fram og verður áfram í herbúðum félagsins til ársins 2028. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar reyndu Blikar að fá leikmanninn yfir í Kópavoginn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Mynd­band ekki fyrir við­kvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í ein­hverri steik“

Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði mjög illa í leik KR og Víkinga á Meistaravöllum í vikunni. Um var að ræða mjög ljótt opið beinbrot. Bein Sveins stóð einfaldlega út úr upphandleggnum á honum og því fylgdi töluverð blæðing. Sveinn gekkst undir aðgerð á miðvikudaginn og verður töluvert frá keppni vegna meiðslanna. Við hittum Svein í Víkinni.

Íslenski boltinn