Náttúruhamfarir

Fréttamynd

Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn

Náttúrufræðingurinn og fjölmiðlamaðurinn David Attenborough fagnar hundrað ára afmæli í dag. Fáir hafa lagt jafnmikið á vogarskálar náttúruverndar í sögunni en hamingjuóskum hefur rignt inn til Attenborough og afmæli hans fagnað víða um heim.

Lífið
Fréttamynd

Risa­flóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há

Risaflóðbylgja sem skolaði yfir afskekktan fjörð í Alaska í fyrra er talin hafa verið tæplega fimm hundruð metra há og sú næststærsta sem sögur fara af. Fjörðurinn er á leið skemmtiferðaskipa. Slíkar flóðbylgjur eru taldar verða tíðari með hlýnandi loftslagi.

Erlent
Fréttamynd

Varnar­garðar á Reykja­nesi: Verk­efnið ríkislög­reglu­stjóra of­viða

Ríkisendurskoðun gerir ýmsar athugasemdir við það hvernig staðið var að undirbúningi og gerð varnargarða við Svartsengi og Grindavík. Lögum samkvæmt var ríkislögreglustjóra falið að fara með framkvæmd aðgerða en Ríkisendurskoðun kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embættinu ofviða.

Innlent
Fréttamynd

Öryggi í skipu­lagi – nauð­syn­leg upp­færsla

Á meðan ógnir og ytri hættur hafa gjörbreyst hefur meðhöndlun öryggis í skipulagi byggðar og landnotkunar lítið þróast. Aukið áfallaþol samfélagsins gerir kröfur um að öryggið sé meðhöndlað á öllum sviðum, þar á meðal á fyrstu stigum skipulags og hönnunar, til að minnka áhættu og auka möguleika í viðbrögðum.

Skoðun
Fréttamynd

Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi al­manna­varna: „Menning þöggunar og úti­lokunar“

Tveir eldfjallafræðingar hættu að fá boð um að sitja vísindaráðsfundi almannavarna fyrir hátt í tveimur árum. Annar þeirra segir að það sé alls ekki gott að opinberar stofnanir nýti sér ekki alla þá þekkingu sem er til á landinu vegna persónulegs ágreinings. Hann vill að settur verði á fót óháður hópur til að skoða viðbrögð við eldgosatímabilinu á Reykjanesi.

Innlent
Fréttamynd

Þrír létust í ó­veðrinu

Þrír eru látnir eftir að stormurinn Jóhannes reið yfir Svíþjóð í gær. Þúsundir eru án rafmagns og samgöngutruflanir eru víða.

Erlent
Fréttamynd

Ekki lengur hægt að breiða yfir sann­leikann

Í dag mun rannsóknanefnd sem Alþingi skipaði til að rannsaka aðdraganda og eftirmál snjóflóðsins í Súðavík fyrir þrjátíu árum skila skýrslu sinni. Kona sem missti dóttur sína í flóðinu segist vona að sannleikurinn fái loksins að koma í ljós.

Innlent
Fréttamynd

Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni

Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í byrjun síðasta árs segir vel mögulegt að endurheimta líkamsleifar hans án þess að stofna lífi annarra í hættu. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölskyldunnar um áframhald leitar.

Innlent
Fréttamynd

Vöruðu við flóðbylgjum eftir stærðarinnar jarð­skjálfta

Yfirvöld í Japan gáfu í dag út flóðbylgjuviðvörun víðsvegar um norðurhluta eyjanna eftir að 7,6 stiga skjálfti varð skammt undan ströndum ríkisins. Búist er við allt að þriggja metra háum flóðbylgjum og var fólki sagt að forðast strandlenguna.

Erlent
Fréttamynd

Af­rek að verk­á­ætlun hafi staðist sam­hliða níu eld­gosum

Sjöunda orkuverið í Svartsengi var gangsett í gær. Um er að ræða 55 megavatta vélarsamstæðu sem jafnframt er stærsti gufuhverfill landsins. Áætlað er að kostnaður við stækkun og endurbætur orkuversins muni nemi ríflega 14 milljörðum króna. Forstjóri segir það gífurlegt afrek að ná að fylgja tíma- og verkáætlun samhliða níu eldgosum, jarðhræringum og gasmengun. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fleiri en þúsund látnir vegna gífur­legra flóða

Að minnsta kosti 604 eru látnir eftir mikil flóð á Indónesíu og að minnsta kosti 464 er enn saknað. Í heildina er vitað til þess að rúmlega þúsund manns hafi dáið vegna flóða í þremur löndum í Suðaustur-Asíu og er rúmlega átta hundruð saknað.

Erlent
Fréttamynd

Tugir látnir eftir flóð í Taí­landi og Indónesíu

Að minnsta kosti 145 eru látnir eftir mikil flóð í suðurhluta Taílands. Dregið hefur úr flóðunum og eru gífurlegar skemmdir að líta dagsins ljós. Áætlað er að flóðin hafi haft áhrif á um 1,2 milljónir heimila og um 3,6 milljónir manna í tólf héruðum Taílands.

Erlent
Fréttamynd

Þrír látnir í risaöldum á Tenerife

Þrír létu lífið og að minnsta kosti fimmtán slösuðust í risaöldum sem herjuðu á Tenerife í gær. Fjöldi ferðamanna hundsaði viðvörunarskilti vegna öldugangsins með þeim afleiðingum að sjógangurinn hreif þá með sér út í sjóinn.

Erlent
Fréttamynd

Tala látinna hækkar á Filipps­eyjum

Tala látinna á Filippseyjum eftir að fellibylurinn Kalmaegi gekk yfir er nú komin í 114 og forseti landsins, Ferdinand Marcos yngri hefur lýst yfir neyðarástandi.

Erlent
Fréttamynd

Sendi síðasta bréfið degi áður en felli­bylurinn gekk yfir

Að minnsta kosti 30 eru látnir eftir að fellibylurinn Melissa gekk yfir Jamaíka á þriðjudag og óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka. Árið 1951 lést íslensk kona í fellibyl á eyjunni en hún skrifaði fjölda bréfa til fjölskyldu sinnar hér á landi og það síðasta degi áður en óveðrið skall á.

Innlent
Fréttamynd

Fordæmalaus eyði­legging vegna Melissu

Sameinuðu þjóðirnar segja að fellibylurinn Melissa hafi valdið fordæmalausri eyðileggingu á Jamaíku og hafa kallað eftir aðstoð handa eyríkinu. Fellibylurinn, sem þykir einn þeirra öflugustu á Karíbahafinu í mannaminnum, lék íbúa á Kúbú og Haítí einnig grátt.

Erlent