Bakgarðshlaup

Fréttamynd

Korter í fæðingarþung­lyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu

Ofurhlauparinn Mari Järsk segir að hún hafi verið korter í fæðingarþunglyndi eftir að sonur hennar fæddist í byrjun ágúst þegar hún komst ekki út að hlaupa. Viku seinna komst hún út að hlaupa og fjórum vikum síðar reif hún sig í gang og hljóp 29 kílómetra í Eldslóðinni, enda styttist í að hún taki þátt í landsliðskeppni Bakgarðshlaupsins í október.

Lífið
Fréttamynd

Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið

Skemmtikrafturinn Steindi Jr. ætlar loksins að hlaupa í Bakgarðshlaupinu á morgun eftir að hafa talað um það í mörg ár. Hann er spenntur fyrir kolvetnasöfnun og hefur engar áhyggjur af of litlum svefni takist honum að hlaupa fram á nótt. Það eina sem hann óttast er að glænýir hlaupaskórnir geti komið honum í koll.

Lífið
Fréttamynd

Ný stjarna fæðist í Heið­mörk um helgina

Það stefnir í óvenju spennandi Bakgarðshlaup í Heiðmörk um helgina. Uppselt er í hlaupið, yfir 200 keppendur eru skráðir til leiks og enginn þeirra sem hefur áður unnið keppnina verður á meðal keppenda. Það er því ljóst að nýr sigurvegari verður krýndur.

Sport
Fréttamynd

Hleypur um LA og ætlar að vinna Bak­garðinn

„Ég er hvergi eins lifandi og þegar ég er kominn tuttugu kílómetra inn, þá líður mér best. Hlaupin hafa líka hjálpað mér mikið með andlega heilsu,“ segir hinn 22 ára gamli Ríkarður Eyberg Árnason sem er búsettur í Los Angeles og starfar þar hjá spelkufyrirtæki. Samhliða því er hann mikill hlaupari og tók meðal annars þátt í LA maraþoninu í vetur.

Lífið
Fréttamynd

Hljóp í tólf klukku­tíma rifbeinsbrotinn

Ofurhlauparinn Harvey Lewis var í harðri baráttu um heimsmeistaratitilinn í bakgarðshlaupum í síðustu viku og var einn af þeim þremur sem héldu lengst út. Nú hefur komið í ljós að hann var ekki bara að keppa við þreytuna og þungar fætur eftir rúma fjóra sólarhringahlaup.

Sport
Fréttamynd

Leysti frá skjóðunni um hvað gerðist í þriðja hring

Guðjón Ingi Sigurðsson segir það hafa gengið vel að jafna sig og ná svefni eftir tæplega tveggja sólarhringa keppni í bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa sem hann vann í Heiðmörk. Hann útskýrði loks hvers vegna minnstu munaði að hann myndi hætta snemma keppni.

Sport
Fréttamynd

„Ætla ekki að segja hvað gerðist í þriðja hring“

„Ég var gjörsamlega að grillast í þessum hring,“ sagði Guðjón Ingi Sigurðsson eftir eina hringinn sem hann þurfti að hlaupa einn til að fagna sigri í bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í nótt. Guðjón íhugaði að hætta strax í þriðja hring en endaði á að hlaupa 43 hringi og setja magnað brautarmet, á afmælisdegi bróður síns heitins.

Sport
Fréttamynd

Slógu saman heims­metið í bakgarðshlaupum

Ofurhlaupararnir Sam Harvey frá Nýja Sjálandi og Phil Gore frá Ástralíu, slógu saman í kvöld heimsmetið í bakgarðshlaupum á Dead Cow Gully bakgarðshlaupinu sem fór fram í Queensland í Ástralíu.

Sport
Fréttamynd

Erfitt að sofa eftir tvo sólar­hringa á hlaupum

Kristinn Gunnar Kristinsson kvartar lítið yfir eymslum í líkamanum eftir afrek síðustu helgar þegar hann fagnaði sigri í Bakgarðshlaupinu í Öskjuhlíð. Valur Páll hitti Kristinn örfáum dögum eftir að hann hafði verið tæplega tvo sólarhringa á hlaupum.

Sport