Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum

Fréttamynd

Rann­sókn hófst eftir til­kynningu starfs­manns

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar.

Innlent
Fréttamynd

Kröfunni hafnað og starfs­mönnunum sleppt

Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu Lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum í tengslum við rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri. Lögreglan á Suðurlandi ætlar að kæra niðurstöðuna til Landsréttar.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldu konunnar grunaði ekkert

Fjölskyldu konu á tíræðisaldri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku, grunaði ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en Lögreglan á Suðurlandi hafði samband við hana um helgina. Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði sig frá rannsókn málsins vegna fjölskyldutengsla starfsmanns hennar við konuna. 

Innlent
Fréttamynd

Fara fram á gæslu­varðhald yfir starfs­mönnum Hraun­búða

Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum sjúkrastofnunar í Vestmannaeyjum í tengslum við andlát á stofnuninni í síðustu viku. Gæsluvarðhaldskrafan verður tekin fyrir í hádeginu en lögregla vill halda sakborningunum fram á föstudag.

Innlent
Fréttamynd

Öðru em­bætti falið að rann­saka and­látið

Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum.

Innlent