Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran
1 2 3 4 5 6 7 … 8 ›
Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Samtök hernaðarandstæðinga boða til skyndimótmæla við bandaríska sendiráðið klukkan 17 á morgun, miðvikudaginn 8. apríl. Í tilkynningu segir að ræðumenn verði kynntir síðar. Innlent 7.4.2026 21:42
Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum og fyrrverandi sendiherra, segir erfitt að rýna í nýjustu yfirlýsingar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hafi á sínum forsetaferli gefið út ýmsar yfirlýsingar sem hann svo stendur ekki við. Það verði að gefa sér að það sama gildi nú. Innlent 7.4.2026 21:32
Hegðun Trumps vonbrigði Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, telur að kjósendur Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafi orðið fyrir vonbrigðum vegna stríðsreksturs stjórnvalda í Íran. Hann segir málflutning forsetans óboðlegan. Innlent 7.4.2026 21:03
Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Ísraelsher hefur varað Írani við því að nota lestarkerfi landsins í dag og fram til klukkan 21 í kvöld. Viðvörunin var gefin út á samfélagsmiðlinum X, þar sem sagði að íbúar væru vinsamlegast beðnir um að ferðast ekki með lestum í dag eða vera nálægt lestarleiðum, þar sem það myndi setja líf þeirra í hættu. Erlent 7.4.2026 06:33
Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði írönsku þjóðina vilja heyra í sprengjuregni vegna þess að hún vill vera frjáls. Þungar loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels séu Írönum til gagns. Erlent 6.4.2026 16:52
Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tillögur að samningi um tafarlaust vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran hefur verið komið á stríðandi aðila. Pakistanar, Egyptar og Tyrkir freista þess að binda enda á átökin áður en Trump lætur til kastanna koma og gerir stórtækari árásir á raforkuinnviði í Íran. Erlent 6.4.2026 14:24
Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Íranski byltingarvörðurinn segir í yfirlýsingu að Majid Khademi, forstjóri yfirmaður leyniþjónustu íranska hersins, hafi verið felldur af Ísraelsher og Bandaríkjaher. Ísraelsmenn gangast við þessu en varnarmálaráðherrann Israel Katz og Ísraelsher lýstu yfir ábyrgð í yfirlýsingum á samfélagsmiðlum. Erlent 6.4.2026 09:36
Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Bandaríski flugliðinn sem bjargað var í Íran er alvarlega særður, að sögn Donald Trump Bandaríkjaforseta. Bandarískir ráðamenn segja Bandaríkjaher hafa sprengt eigin flugvélar og þyrlur í björgunaraðgerðinni vegna bilana sem komu upp. Íranir vilja meina að þeir hafi grandað vélunum. Erlent 5.4.2026 15:33
„Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar, annars fáið þið að búa í helvíti,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðla. Hann ýjar að því að sprengja orkuver og brýr í Íran á þriðjudag, opni Íranir ekki Hormússund á ný. Erlent 5.4.2026 12:27
Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Bandaríkjaher tókst í gær að bjarga bandaríska flugliðanum sem hefur verið týndur í Íran síðan á föstudag, þegar bandarísk orrustuþota var skotin niður yfir Íran. Íranir og Bandaríkjamenn kepptust við að vera fyrstir til að finna hann. Erlent 5.4.2026 07:43
Gefur skít í helvítishótanir Trumps Íranski herinn gerir lítið úr hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem sagði fyrr í dag að „allt færi til fjandans“ í Íran ef Íranir opnuðu ekki fyrir umferð um Hormússund eða samþykktu ekki friðarsamkomulag innan við tvo sólarhringa. Innlent 4.4.2026 22:10
„48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Íranir hafa til mánudags til þess að opna Hormússund á ný eða gera einhvers konar samkomulag við Bandaríkin, annars fer allt í bál og brand. Svo hljóðar nýjasta hótun Bandaríkjaforseta, sem hefur þó lítið sem ekkert tjáð sig um týnda bandaríska flugmanninn sem Bandaríkjaher og Íranir keppast um að finna. Erlent 4.4.2026 18:10
Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Bæði Bandaríkjamenn og Íranir leita enn að bandarískum herflugmanni eftir að herþota sem hann var um borð í var skotin niður. Átta milljónir íslenskra króna eru í boði hverjum þeim sem getur vísað írönskum yfirvöldum á „óvinaflugmanninn“. Erlent 4.4.2026 14:36
Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Donald Trump Bandaríkjaforseti vildi ekki tjá sig um mögulegar afleiðingar þess að flugmaður sem saknað er eftir að orrustuþota var skotin niður yfir Íran komi til skaða. Erlent 3.4.2026 23:09
Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Önnur bandarísk herþota er sögð hafa hrapað á Persaflóasvæðinu í dag. Flugmaðurinn er sagður heill á húfi og ekki í haldi Írana. Erlent 3.4.2026 19:05
Einum úr áhöfninni bjargað Íranski herinn skaut bandaríska herflugvél af gerðinni F-15 yfir miðhluta landsins í dag. Leit að áhöfninni stendur yfir en öðrum áhafnarmeðlimi af tveimur hefur verið bjargað. Erlent 3.4.2026 13:05
Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði nær öllum markmiðum sínum með stríðinu í Íran náð og að það nálgist endalok sín. Stríðinu lyki innan næstu tveggja til þriggja vikna sagði forsetinn án þess að gefa það upp hvernig til þess kæmi. Erlent 2.4.2026 11:33
Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur. Erlent 1.4.2026 10:53
Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn munu „yfirgefa“ Íran innan tíðar og að hernaðaraðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur. Þá segir hann aðalmarkmiðum hafa verið náð, það er að segja að koma í veg fyrir að Íranir eignuðust kjarnavopn. Erlent 1.4.2026 07:04
Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Sjálfstætt starfandi blaðamanni hefur verið rænt í Bagdad, höfuðborg Íraks, og er einn hinna grunuðu tengdur vígahópnum Kataib Hezbollah, að sögn írakskra og bandarískra embættismanna. Erlent 31.3.2026 22:05
Blaðamanni rænt í Írak Erlendum blaðamanni hefur verið rænt í Írak en innanríkisráðuneytið þar hefur staðfest mannránið. Það gat ekki veitt nokkrar upplýsingar um hver blaðamaðurinn er eða hverslenskur. Erlent 31.3.2026 19:38
„Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki. Erlent 31.3.2026 12:53
Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund Donald Trump hefur sagt ráðgjöfum sínum í Hvíta húsinu að hann sé tilbúinn til að binda enda á stríð Bandaríkjanna gegn Íran, án þess að opna Hormússund fyrir skipasiglingar á nýjan leik. Forsetinn og ráðgjafar hans eru sagðir þeirrar skoðunar að það yrði of tímafrekt að opna sundið með hervaldi og þess vegna vilji hann halda í hluta af upprunalegu markmiðum sínum um að útrýma flota Íran og valda skaða á eldflaugaframleiðslu þar og binda enda á árásir á næstunni. Erlent 31.3.2026 10:14
Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund Íranskir miðlar hafa greint frá því að þingnefnd hafi samþykkt tillögu um að heimta toll af skipaumferð um Hormuz-sund. Samkvæmt fréttastofunni Fars verður sundið lokað skipum frá Bandaríkjunum, Ísrael og öðrum ríkjum sem hafa beitt Íran refsiaðgerðum. Erlent 31.3.2026 08:14
Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Bandaríkjamenn eiga í viðræðum við „nýja og skynsamari“ ríkisstjórn í Íran um að binda enda á árásir á landið. Þessar viðræður hafa skilað miklum árangri, eftir því Donald Trump Bandaríkjaforseti, segir en hann hótar þó umfangsmiklum stríðsglæpum gegn Íran, náist samningar ekki fljótt og verði Hormússund ekki opnað fyrir skipasiglingar á nýjan leik. Erlent 30.3.2026 14:00
Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka álögur og skatta á eldsneyti frá og með 1. apríl næstkomandi til þess að létta undir með landsmönnum. Olíuverð er nú í hæstu hæðum vegna stríðsins í Íran og verð á hráolíu er komið yfir 116 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 30.3.2026 08:29
Enn fer ekki saman hljóð og mynd Donald Trump Bandaríkjaforseti heldur áfram að hafa í hótunum við stjórnvöld í Íran, á sama tíma og hann segir samningaviðræður eiga sér stað, beint og óbeint, og lýsir nýrri forystu landsins sem „sanngjarnri“ (e. reasonable). Erlent 30.3.2026 06:24
Íranir búa sig undir árásir landherliðs Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum. Erlent 29.3.2026 14:41
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. Erlent 28.3.2026 23:41
Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Yfir þrjú þúsund mótmælaviðburðir gegn forsetanum Donald Trump hafa verið skipulagðir víða í Bandaríkjunum í dag og viðbúið er að milljónir sæki þá. Erlent 28.3.2026 14:55