Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur
Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Margrétar McArthur Friðriksdóttur um að fá að leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralang einelti af hálfu Sigríðar. Innlent 25.3.2026 13:09
Enn frekari dráttur á máli Margrétar Mál Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti McArthur Friðriksdóttur var ekki endurflutt í dag líkt og til stóð. Þess í stað fór fram málflutningur um kröfu Margrétar um endurteknar vitnaleiðslur í málinu og um að Sigríður Hjaltested héraðsdómari verði leidd fyrir dóminn sem vitni. Innlent 6.3.2026 15:36
Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Mál Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti McArthur Friðriksdóttur verður flutt munnlega á ný klukkan 14. Ástæðan er sú að ekki tókst að kveða upp dóm í málinu innan fjögurra vikna frá málflutningi, líkt og kveðið er á um í lögum um meðferð sakamála. Innlent 6.3.2026 13:07
Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Margrét Friðriksdóttir og verjandi hennar Hilmar Garðar Þorsteinsson hafa krafist þess að mál gegn henni vegna ummæla um héraðsdómara verði endurflutt. Dómsuppkvaðningu hefur ítrekað verið frestað umfram þann tímaramma sem lög gera ráð fyrir. Innlent 18.2.2026 18:32
„Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Barböru Björnsdóttur héraðsdómarar í ærumeiðingamáli Margrétar Friðriksdóttur, segist telja ummæli Margrétar klárar ærumeiðingar. Hún kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“. Þá gagnrýnir hann hversu nærri var gengið Barböru í vitnaleiðslu. Innlent 16.1.2026 16:52
Barbara sakar Sigríði um einelti og Valtý um gagnaleka Barbara Björnsdóttir héraðsdómari segir Sigríði Hjaltested, meðdómara hennar við Héraðsdóm Reykjavíkur, hafa lagt hana í einelti í rúma tvo áratugi. Sigríður hafi ritað Dómstólasýslunni bréf þar sem fullyrt er að þau Símon Sigvaldason, þáverandi dómstjóri, hafi átt í ástarsambandi. Valtýr Sigurðsson, eiginmaður Sigríðar og fyrrverandi ríkissaksóknari, hafi lekið bréfinu til verjanda Margrétar Friðriksdóttur, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru. Innlent 16.1.2026 14:31
„Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Margrét Friðriksdóttir, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir Barböru hafa framið á henni réttarmorð, með því að sakfella hana fyrir hótunarbrot. Hún hafið reiðst vegna þess og því ritað færslu á Facebook, þar sem hún úthúðaði dómaranum. Hún kveðst hafa opnað orðabók í leit að mildasta orðinu til þess að lýsa Barböru. „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm,“ sagði hún meðal annars. Innlent 16.1.2026 11:34
Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Aðalmeðferð í máli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á hendur Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra vefsins Frettin.is verður háð fyrir opnum tjöldum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Margrét er ákærð fyrir ærumeiðingar í garð dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem hafði sakfellt hana fyrir hótanir. Innlent 9.5.2025 17:03
Dómari fær ekki að víkja í máli Margrétar Landsréttur hefur fellt úrskurð héraðsdómarans Jónasar Jóhannssonar, um að hann víki sjálfur sæti í ærumeiðingamáli Margrétar Friðriksdóttur ritstjóra, úr gildi. Margrét sætir ákæru fyrir að hafa meðal annars kallað annan héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur „lausláta mellu“. Allir dómarar þess dómstóls höfðu áður vikið sæti í málinu. Innlent 20.1.2025 12:18
Héraðsdómari kærir Margréti fyrir meiðyrði Barbara Björnsdóttir, héraðsdómari, hefur kært Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra frettin.is, fyrir meiðyrði. Margrét var yfirheyrð af lögreglu vegna málsins í fyrradag. Innlent 1.4.2023 11:05
Margrét úthúðar dómurum og verjandi hennar segir sig frá málinu Margrét Friðriksdóttir segist ekki ætla að fjarlægja færslu um héraðsdómara sem hún kallar siðblindan og fleiri ljótum nöfnum. Lögmaður hennar hefur sagt sig frá málinu. Innlent 10.2.2023 12:27