Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Rússneska sendiráðið á Íslandi segist afar undrandi á orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í gær þar sem hún sagði tíst Ólafs Ragnars Grímssonar hafa verið alvarlegri en skrif Heimis Más Péturssonar framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Rússar skrifa þó að orð Þorgerðar Katrínar gefi ástæðu til varlegrar bjartsýni. Innlent 3.11.2026 08:45
Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Bandarískir erindrekar og embættismenn hafa lagt til að Evrópa hefji á nýjan leik að kaupa jarðgas frá Rússlandi. Gasið verði flutt gegnum úkraínskar leiðslur og keypt af bandarískum milliliðum til að komast hjá refsiaðgerðum Evrópuríkja. Ráðamenn í Evrópu hafa tekið illa í þessa hugmynd, sem þeir Steve Witkoff og Jared Kushner hafa verið að stinga upp á á undanförnum vikum. Erlent 2.11.2026 23:02
Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Rússar vörpuðu sprengjum á skóla í sunnanverðri Úkraínu í dag, þar sem íbúar bæjar nærri víglínunni höfðu komið saman til að fá mataraðstoð. Í heildina vörpuðu Rússar tíu stórum sprengjum á skólann í nokkrum bylgjum. Að minnsta kosti 26 eru látnir og minnst tuttugu er saknað. Erlent 2.11.2026 19:43
„Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Kristrún Frostadóttir segist ekki gera athugasemd við að starfsbræður hennar í Noregi og í Finnlandi hafi rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Hún viti í grófum dráttum hvað kom fram í símtalinu og að lykilatriðið sé að samtalið sé átt á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta. Innlent 27. október 2026 18:06
Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segist efins um nytsemi símtals starfsbræðra hennar í Noregi og í Finnlandi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti segist þakklátur stuðningi Norðmanna og Finna í stríðinu, hann hafi verið upplýstur um efnislegt innihald samtalsins. Pútín er sagður hafa kennt stefnu NATO og ESB um lengd stríðsins. Erlent 27. október 2026 13:29
Stubb og Støre ræddu við Pútín Forseti Finnlands Alexander Stubb og forsætisráðherra Noregs Jonas Gahr Støre ræddu símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Þeir segja samtalið hafa verið hreinskiptið og viðamikið þar sem þeir hafi gagnrýnt framferði Rússa í Úkraínu. Erlent 27. október 2026 10:09
Musk segi ósatt um Starlink Serhii Sternenko, ráðgjafi úkraínska varnarmálaráðuneytisins, hafnar fullyrðingum Elons Musk um að Úkraínumenn hafi brotið gegn notkunarskilmálum Starlink með því að nota kerfið við drónaárásir. Erlent 24. október 2026 23:11
Geta notað drónana til fulls á ný Tenging úkraínskra hermanna við Starlink-tæknina er aftur orðin stöðug samkvæmt varnarmálaráðherra landsins. Herinn hafði takmarkaða tengingu við tæknina í nokkra daga en hermenn reiða sig mikið á hana í hernaði gegn Rússum. Erlent 24. október 2026 14:27
Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, er sögð hafa tryggt staðbundið mannúðarvopnahlé í Úkraínu. Vopnahlé þetta er bundið við bæinn Oleshky í Kherson-héraði, suður af Dnípróá. Þaðan hafa um nokkuð skeið borist fregnir af hræðilegum aðbúnaði íbúa og harðræði sem þeir eru beittir af Rússum. Erlent 23. október 2026 14:16
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Rússar skutu mörgum skotflaugum og flugu fjölda sjálfsprengidróna að Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu í gærkvöldi og í nótt. Að minnsta kosti 21 skotflaug lenti í höfuðborginni í þremur mismunandi bylgjum en samkvæmt Úkraínumönnum bar allavega ein þeirra klasasprengjur, sem hannaðar eru til að dreifa tugum smærri sprengja yfir stórt svæði. Erlent 22. október 2026 11:08
„Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Ráðgjafi Vladimírs Pútín segir að Rússar séu tilbúnir til þríhliða viðræðna milli Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa mótmælt ummælum erindreka Donalds Trump um að Pútín sé mannvinur. Erlent 21. október 2026 14:56
Björguðu særðum hermanni með dróna Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott. Erlent 21. október 2026 13:54
Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum. Erlent 21. október 2026 12:18
Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. Innlent 20. október 2026 21:12
Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu. Erlent 20. október 2026 15:18
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Stuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025. Sú fjárhæð nær yfir nokkur ár og felur einnig í sér greiðslur á næstu árum. Innlent 19. október 2026 22:02
Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Vladimír Pútín hefur lagt til við Donald Trump að þeir og Xi Jinping komi saman í næsta mánuði og ræði hvernig binda eigi enda á stríðið í Úkraínu. Pútín er sagður vilja nýta bætt samband sitt og Trumps og versnandi samband Trumps og Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu. Þessar vendingar hafa leitt til mikilla áhyggja í Evrópu og í Úkraínu, sem munu ekki eiga fulltrúa á fundinum, verði af honum. Erlent 19. október 2026 08:17
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Bandaríkjaforseti segir að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn og að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið þá frá samningaborðinu. Erlent 18. október 2026 21:47
Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Hann tilkynnti á þinginu í gær að hann væri að fresta gildistökunni í þágu þjóðarhagsmuna en útskýrði það ekki nánar. Erlent 17. október 2026 08:17
Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni. Erlent 16. október 2026 22:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf. Erlent 16. október 2026 08:02
Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars. Erlent 15. október 2026 10:33
„Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Vólódimír Selenskí, forseti Úkraínu, telur að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi svikið sig persónulega eftir að takmarkanir voru gerðar á notkun úkraínska hersins á Starlink-tækninni. Erlent 14. október 2026 23:41
Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, þvertekur fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Hann vísar á bandarísk stjórnvöld. Erlent 14. október 2026 20:01