Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Afturelding 32-25 | Endurtekið efni frá því í 1. umferðinni Ingvi Þór Sæmundsson á Selfossi skrifar 10. nóvember 2016 21:30 Línumaðurinn Guðni Ingvarsson skoraði sjö mörk í leiknum. VÍSIR/ernir
Selfoss bar sigurorð af Aftureldingu, 32-25, í toppslag í Olís-deildar karla í kvöld. Með sigrinum minnkuðu Selfyssingar forskot Mosfellinga á toppnum niður í fjögur stig. Þegar þessi lið mættust í 1. umferð Olís-deildarinnar unnu Selfyssingar með sömu markatölu og í kvöld en þeir eru eina liðið sem hefur unnið Aftureldingu í vetur. Selfoss er áfram í 2. sæti deildarinnar, nú með 12 stig eftir tíu umferðir. Afturelding er með 16 stig á toppnum. Selfoss leiddi með þremur mörkum, 16-13, í hálfleik eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik. Afturelding byrjaði leikinn miklu betur og Birkir Benediktsson og Elvar Ásgeirsson áttu í litlum vandræðum með að skora gegn slakri vörn heimamanna. Þá fór Davíð Svansson vel af stað í marki gestanna, varði þrjú skot á fyrstu sjö mínútum leiksins en aðeins tvö eftir það. Á meðan tók Helgi Hlynsson tólf skot í fyrri hálfleik (48%) í marki Selfoss. Árni Bragi Eyjólfsson kom Aftureldingu þremur mörkum yfir, 3-6. Þá tók Stefán Árnason, þjálfari Selfoss, leikhlé sem hafði góð áhrif á hans menn. Þeir spiluðu betri sóknarleik í framhaldinu með Elvar Örn Jónsson fremstan í flokki og varnarleikurinn styrkist jafnt og þétt. Þegar níu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik, í stöðunni 10-10, fór Birkir meiddur af velli og við það fór mesti broddurinn úr sóknarleik Aftureldingar. Birkir byrjaði leikinn frábærlega og var kominn með fimm mörk þegar hann þurfti að yfirgefa völlinn. Heimamenn gengu á lagið, skoruðu sex af síðustu níu mörkum fyrri hálfleiks og fóru með þriggja marka forystu til búningsherbergja. Eyvindur Hrannar Gunnarsson skoraði síðasta mark fyrri hálfleik rétt í þann mund sem tíminn rann út. Selfyssingar spiluðu seinni hálfleikinn af mikilli skynsemi og hleyptu Mosfellingar aldrei nær sér en tveimur mörkum. Birkir spilaði ekkert í seinni hálfleik og hans var sárt saknað í sóknarleik gestanna. Mikið mæddi á Elvari og Árna Braga en þeir fengu ekki nógu mikla hjálp. Vörn Selfyssinga var betri í seinni hálfleiknum en þeim fyrri og Helgi hélt uppteknum hætti í markinu. Hann varði alls 20 skot, eða 45% þeirra skota sem hann fékk á sig. Á meðan vörðu markverðir Aftureldingar varla skot í seinni hálfleiknum. Selfyssingar voru alltaf með undirtökin í seinni hálfleik og það var sama upp á hverju Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, bryddaði; heimamenn áttu svör við því öllu. Elvar minnkaði muninn í 25-23 þegar átta mínútur voru eftir. En í næstu sókn Selfyssinga lét Gunnar Malmquist Þórsson reka sig út af og heimamenn refsuðu með tveimur mörkum í röð. Það bil náðu gestirnir ekki að brúa og Selfoss vann að lokum sjö marka sigur, 32-25. Guðni Ingvarsson, Elvar Örn og Einar Sverrisson voru markahæstir í liði Selfoss með sjö mörk hver. Elvar og Árni Bragi skoruðu sjö mörk hvor fyrir Aftureldingu.Stefán: Ætlum ekkert að blekkja sjálfa okkur Stefán Árnason, þjálfari Selfoss, var hinn kátasti eftir sterkan sigur hans manna, 32-25, á Aftureldingu í kvöld. „Við vorum einbeittir í að spila okkar leik og ná okkar hlutum í gang. Það tók korter að byrja leikinn. Mér fannst þeir vera með frumkvæðið og stjórn á leiknum fyrstu 15 mínúturnar. En þegar við sýndum meira frumkvæði í vörninni og stjórnuðum hraðanum fannst mér við vera miklu sterkari,“ sagði Stefán. Selfoss var þremur mörkum yfir í hálfleik, 16-13, og lét það forskot aldrei af hendi í seinni hálfleik. Stefán kvaðst ánægður með stjórnina sem hans menn höfðu á leiknum. „Við vorum ótrúlega yfirvegaðir. Það var mikil stjórn á vellinum, alveg sama þótt þeir breyttu um vörn og sama hvað þeir reyndu. Við létum þá aldrei slá okkur út af laginu og héldum „kúlinu“. Við vorum árásargjarnir allan leikinn og alltaf með nýjar og nýjar lausnir,“ sagði Stefán sem er ánægður með þróunina á leik Selfyssinga. „Maður sér þroskamerki á liðinu í hverri viku og við erum alltaf að bæta okkur. Það sem við erum að vinna í verður betra með hverri vikunni; vörnin, sóknin og líka það að hafa stjórn á leiknum og kunna að vera yfir. Við erum á réttri leið.“ Selfyssingar eru á góðri siglingu, sitja í 2. sæti Olís-deildarinnar og hlutirnir líta afskaplega vel út fyrir þá. En hversu langt getur þetta lið farið? „Það er erfitt að segja,“ sagði Stefán. „Við ætlum ekkert að blekkja sjálfa okkur með því að halda að við séum komnir í baráttu um einhverja titla. Við vitum að ef við töpum 1-2 leikjum í röð erum við komnir niður í 7.-8. sæti deildarinnar. Við höldum bara áfram og tökum einn leik fyrir í einu.“Einar Andri: Áttum að geta leyst þetta án Birkis „Mér fannst við byrja þennan leik mjög vel og vorum virkilega góðir fyrstu 20 mínúturnar. Síðan misstum við tökin á vörn og markvörslu og þess vegna var þetta erfitt í seinni hálfleik,“ sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir sjö marka tap, 32-25, á Selfossi í kvöld. Mosfellingar byrjuðu leikinn af krafti en urðu fyrir áfalli eftir um 20 mínútna leik þegar Birkir Benediktsson fór meiddur af velli. „Hann fer í myndatöku á eftir. Hann fékk högg á fingurinn og bólgnaði mikið,“ sagði Einar Andri sem viðurkenndi að brotthvarf Birkis hefði tekið mesta broddinn úr sóknarleik Aftureldingar. „Birkir var búinn að vera frábær og skora fimm mörk á fyrstu 20 mínútur. Það er mikil skotógn af honum og við þurftum að spila aðeins öðruvísi. En það er sama, við eigum að geta leyst þetta með aðra en hann fyrir utan.“ Markverðir Aftureldingar vörðu samtals átta skot í öllum leiknum á meðan Helgi Hlynsson tók 20 bolta í marki Selfoss. Einar Andri vildi fá betri markvörslu í leiknum. „Klárlega, sérstaklega í seinni hálfleik þar sem við vorum held ég með tvö skot varin. Það er óvenjulegt því markvarslan var frábær í fyrstu níu leikjunum. Markverðirnir áttu kannski einn slakan leik inni og vörnin hefði mátt stíga upp,“ sagði Einar Andri að endingu.
Olís-deild karla Mest lesið Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Körfubolti Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Fótbolti Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Körfubolti Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Enski boltinn Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Fótbolti Jón Dagur þaggaði niður í gagnrýnendnum með mögnuðu marki Fótbolti Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Körfubolti Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Handbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti
Leik lokið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Körfubolti