Mögnuð frammistaða Ólafíu á Hills vellinum | Er í 3. sæti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. desember 2016 20:15 Ólafía lék einstaklega vel í dag. mynd/LET/tristan jones
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistarinn í golfi, lék frábærlega á þriðja keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir LPGA-mótaröðina. Ólafía lék hringinn í dag á 67 höggum, eða fimm höggum undir pari. Í heildina er Ólafía á níu höggum undir pari og er í 3. sæti. Hún var í 10. sæti eftir annan keppnisdaginn og 72. sæti eftir þann fyrsta. Japaninn Nasa Hataoka er efst á 14 höggum undir pari, einu höggi á undan Jaye Marie Green frá Bandaríkjunum sem er í 2. sæti. Ólafía náði sér mun betur á strik á Hills vellinum í dag en á fyrsta keppnisdeginum. Þar fékk hún fjóra skolla á fyrstu sjö holunum en í dag fékk hún aðeins einn skolla á holunum átján. Ólafía byrjaði einstaklega vel í dag og fékk fjóra fugla á fyrstu átta holunum. Hún fékk alls sex fugla, 11 pör og einungis einn skolla. Mótinu lýkur á sunnudaginn en tuttugu efstu tryggja sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni sem er sú sterkasta í kvennagolfinu. Hér fyrir neðan má sjá hvernig annar dagurinn gekk fyrir sig en hann var í beinni textalýsingu hér inn á Vísi.
Golf Tengdar fréttir Ólafía Þórunn í 10. sæti eftir annan keppnisdaginn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 10. sæti eftir annan keppnisdaginn á lokaúrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð kvenna í atvinnugolfi. 1. desember 2016 20:40 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
Ólafía Þórunn í 10. sæti eftir annan keppnisdaginn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 10. sæti eftir annan keppnisdaginn á lokaúrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð kvenna í atvinnugolfi. 1. desember 2016 20:40