Fréttir
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 334 ›
Meinað að taka þátt þar sem hún þurfti að hafa barnið með sér Móðir í leikskólakennaranámi við Háskólann á Akureyri er afar ósátt eftir að kennari við skólann meinaði henni að taka þátt í námslotu vegna þess að hún þurfti að hafa barnið sitt með sér. Þetta varð til þess að hún gat aðeins fengið þriðjung af lotunni metinn. Hún er síður ánægð með aðgerðaleysi skólans í málinu og sakar hún kennarann um brot þagnarskyldu. Innlent 24.10.2025 14:34
Vill fund vegna „alvarlegrar stöðu“ á lánamarkaði Fulltrúi Framsóknar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, Stefán Vagn Stefánsson, hefur óskað eftir fundi í nefndinni til að ræða þá alvarlegu stöðu sem upp er komin á lánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Innlent 24.10.2025 14:27
Þingnefnd ræðir stöðuna á Grundartanga: „Þetta er bara óljóst“ Atvinnuveganefnd Alþingis fundaði í gær og aftur í morgun vegna þeirrar stöðu sem uppi er eftir að stór hluti framleiðslu Norðuráls á Grundartanga stöðvaðist í vikunni vegna bilunar. Nefndin hefur fengið fulltrúa Norðuráls, Samtaka iðnarðarins, Verkalýðsfélags Akraness og frá orkufyrirtækjunum á sinn fund til að rýna stöðuna. Staðan er sögð sýna fram á mikilvægi þess að hlúið verði að samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja í iðnaði. Innlent 24.10.2025 13:50
Musk kallar ráðherra heimskan og homma Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur í vikunni ítrekað skotið föstum skotum að Sean Duffy, samgönguráðherra Bandaríkjanna og starfandi yfirmanni Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna. Musk hefur einnig varpað fram barnalegum bröndurum um að Duffy sé heimskur og samkynhneigður. Erlent 24.10.2025 13:30
Sjálfstæðismenn stefna á leiðtogaprófkjör í borginni Stjórn Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun leggja tillögu um leiðtogaprófkjör fyrir ráðið. Samkvæmt tillögunni myndi ráðið svo greiða atkvæði um sæti tvö til sjö á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Innlent 24.10.2025 13:13
Íslendingar meðal sakborninga en enginn í varðhaldi Rannsókn lögreglu á meintum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar er enn í fullum gangi að sögn rannsóknarlögreglumanns sem sér enn ekki fyrir endann á málinu. Íslenskir ríkisborgarar eru meðal sakborninga en fjórum sakborningum hefur verið vísað til Albaníu. Á sumum stöðum hafi kannabisframleiðsla staðið yfir í nokkur ár. Innlent 24.10.2025 12:55
Svona var haldið upp á fimmtíu ára afmæli kvennafrídagsins Skipuleggjendur reikna með mikilli þátttöku í kvennaverkfallinu í dag þegar haldið er upp á það að fimmtíu ár eru liðin frá fyrsta kvennafrídeginum árið 1975. Vísir verður í beinni útsendingu og vakt frá sögugöngu eftir Sóleyjargötu þar sem leikkonur bregða sér í gervi kvenskörunga og svo frá Arnarhóli þar sem reiknað er með múgi og margmenni. Innlent 24.10.2025 12:54
Blöskrar „vælið“ vegna Norðuráls Viðbrögð hagsmunasamtaka við tímabundnum samdrætti í álframleiðslu hjá Norðuráli vegna bilunar fara öfugt ofan í marga. Ekki sé um þjóðarvá að ræða og óeðlilegt að ríkisstjórnin grípi inn í eins og krafa sé um. Það sé lenska hérlendis að grenja og hegða sér eins og ofdekraðir krakkar. Innlent 24.10.2025 12:23
Neita öllum ásökunum um samráð Staðfest er að sex voru handteknir en síðan sleppt eftir skýrslutöku vegna meintra brota fyrirtækjanna Terra og Kubbs á samkeppnislögum. Forráðamenn Kubbs hafna öllum ásökunum. Innlent 24.10.2025 12:06
Leggja til breytingar við Reykjavíkurflugvöll eftir að lá við árekstri kennsluvéla Meta ætti hvort ástæða sé til þess að breyta reglum um loftrýmið í kringum Reykjavíkurflugvöll eftir alvarlegt flugatvik þar sem lá við árekstri tveggja kennsluflugvéla yfir Kópavogi í fyrra. Þetta er tillaga rannsóknarnefndar samgönguslysa eftir rannsókn hennar á atvikinu. Innlent 24.10.2025 11:48
„Við ætlum að drepa þá. Þeir verða, sko, dauðir“ Bandarískir flugmenn flugu að minnsta kosti tveimur hljóðfráum sprengjuvélum upp að ströndum Venesúela í gær. Var það í annað sinn á rétt rúmri viku sem slíkt var gert en þá voru áhafnir þriggja B-52 sprengjuvéla að æfa mögulegar árásir. Bandaríkjamenn hafa byggt upp töluverða hernaðargetu á og við Karíbahafið. Erlent 24.10.2025 11:45
Kvennaverkfall að hefjast og breytingar á lánum Landsbankans Kvennaverkfallið verður í fyrirrúmi í fréttatímanum nú í hádeginu. Undirbúningur er í fullum gangi fyrir dagskrá á Asturvelli síðar í dag og í öðrum sveitarfélögum hófst hún jafnvel strax í morgun. Erlent 24.10.2025 11:37
Sættir sig ekki við sýknu tálbeitunnar Ríkissaksóknari hefur áfrýjað sýknudómi tálbeitunnar í Gufunesmálinu svokallaða og krefst þess að hún verði sakfelld. Þrír aðrir sakborningar hafa áfrýjað þungum dómum í málinu. Innlent 24.10.2025 11:14
Heimilar umferð um Vonarskarð Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest breytingartillögu svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að heimila vélknúna umferð og hjólreiðar um Vonarskarð frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært. Innlent 24.10.2025 11:07
Sennilegt að ástand Þingvallavegar hafi haft áhrif á aðdraganda banaslyss Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Vegagerðar að endurskoða hálkuvarnir á Þingvallavegi með tilliti til vegarkaflans við Álftavatn og að Vegagerðin geri öryggisúttekt á undirbyggingu Þingvallavegs við Álftavatn. Það gerir nefndin í skýrslu um banaslys á Þingvallavegi í febrúar á þessu ári. Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu. Skýrsla rannsóknarnefndar var birt í dag. Innlent 24.10.2025 10:58
Miðla sögu jafnréttisbaráttunnar á Íslandi til útlanda Íslensk stjórnvöld hafa sett í loftið vefsíðu á ensku þar sem sögu og árangri jafnréttisbaráttunnar á Íslandi eru gerð skil. Kvennaverkfallið sem boðað er í dag, í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá kvennaverkfallinu 1975, hefur vakið athygli út fyrir landssteinana. Dómsmálaráðherra sagði í viðtali við Sky News í gær að tilefni sé til að fagna þeim árangri sem náðst hafi en um leið sé baráttunni hvergi lokið. Innlent 24.10.2025 10:54
Bein útsending: Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði ASÍ stendur fyrir málþingi í tilefni af kvennaverkfalli í dag sem ber yfirskriftina Nútíma kvennabarátta – Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði. Innlent 24.10.2025 09:30
Dóra Björt stefnir á formanninn Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar og oddviti Pírata í borgarstjórn, ætlar að bjóða sig fram til nýs embættis formanns Pírata. Hún segir marga hafa hvatt hana til að bjóða sig fram til embættisins og að hún vilji taka þátt uppbyggingu og endurreisn sem sé framundan. Innlent 24.10.2025 09:09
Náðaði rafmyntamógúl sem hefur hjálpað rafmyntaveldi Trump Donald Trump Bandaríkjaforseti náðaði stofnanda rafmyntafyrirtækisins Binance sem hefur stutt fjárplógsstarfsemi fjölskyldu forsetans í rafmyntum í gær. Sá hlaut fangelsisdóm fyrir peningaþvætti sem gerði glæpa- og hryðjuverkamönnum kleift að flytja fjármuni. Erlent 24.10.2025 09:05
Vilja að þunguðum konum verði líka heimilt að deyja Níu einstaklingar í Michigan í Bandaríkjunum hafa höfðað mál gegn yfirvöldum og vilja að aðstandendur þungaðra kvenna sem hlotið hafa heilaskaða og munu ekki ná sér geti tekið ákvörðun um að leyfa þeim að deyja. Erlent 24.10.2025 08:50
Þjóðin klofin í afstöðu til þess hvort jafnrétti kynjanna hafi verið náð Segja má að þjóðin skiptist í tvær fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort fullu kynjajafnrétti hafi verið náð á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Gallup. Nær 47% svarenda segja jafnrétti milli karla og kvenna hafa verið náð en 44% telja svo ekki vera. Töluverður munur er á afstöðu kynjanna til þessa en þannig telja ríflega 60% karla að jafnrétti hafi verið náð en aðeins rúm 30% kvenna. Þá er yngra fólk og þau sem eru tekjuhærri líklegra til að finnast jafnrétti hafa verið náð. Innlent 24.10.2025 08:44
Bein útsending: Umhverfismat vegna Sundabrautar kynnt Kynningarfundur Vegagerðarinnar um niðurstöður umhverfismats vegna Sundabrautar hefst klukkan 9 og er áætlað að hann standi í eina og hálfa klukkustund. Innlent 24.10.2025 08:16
Varnar- og öryggisstefna fyrir Ísland: Áhersla á Norðurslóðir, NATO og samstarf við Bandaríkin Þingsályktunartillögu um fyrstu formlegu stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum hefur verið dreift á Alþingi. Tillagan felur í sér þrettán megináherslur, meðal annars um aukna þátttöku Íslands í starfi og verkefnum Atlantshafsbandalagsins, að efla varnarsamstarf við Bandaríkin og annað tvíhliða samstarf við bandalagsríki, og að styrkja þátttöku Íslands í svæðisbundnu samstarfi, einkum á Norðurslóðum. Tillagan er í megindráttum í samræmi við þær fjórtán lykiláherslur sem samráðshópur þingmanna lagði til í skýrslu sem kynnt var í september. Innlent 24.10.2025 08:11
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump stendur loks við stóru orðin Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur beitt tvö stærstu olíufyrirtæki Rússlands refsiaðgerðum, sem gætu gert fyrirtækjunum erfitt að selja olíu til ríkja eins og Indlands og Ungverjalands. Trump hefur hótað aðgerðum sem þessum um langt skeið en aldrei tekið í gikkinn fyrr en nú en aðgerðirnar gætu komið mjög niður á tekjum rússneska ríkisins. Erlent 24.10.2025 08:01
Trump slaufar öllum viðræðum við Kanada út af sjónvarpsauglýsingu sem fór fyrir brjóstið á honum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vera hættur öllum viðræðum við Kanadamenn um tolla og viðskipti á milli landanna. Ástæðan er auglýsing sem sýnd hefur verið í Kanada þar sem tollahækkanir Trumps eru harðlega gagnrýndar. Erlent 24.10.2025 07:28
Villur í dómum sömdum með aðstoð gervigreindar Tveir alríkisdómarar í Bandaríkjunum hafa viðurkennt að hafa gefið út ákvarðanir sem voru fullar af villum, eftir að gervigreind var notuð til að semja þær. Erlent 24.10.2025 07:10
Frost komst í fjórtán stig í nótt Það var hægur vindur og kalt á landinu í nótt og komst frost í þrettán til fjórtán stig á nokkrum stöðvum norðaustanlands. Veður 24.10.2025 07:05
Belgar komu í veg fyrir samþykkt um nýtingu rússneskra eigna Leiðtogum Evrópusambandsins tókst ekki að ná saman í gær um að nýta frystar eignir Rússlands til að fjármagna varnir Úkraínu. Málið strandaði á Belgíu. Erlent 24.10.2025 06:50
Allt að áttatíu þúsund mæti í miðbæinn og götulokanir í gildi Búist er við að allt að áttatíu þúsund manns, einkum konur og kvár, leggi leið sína í miðborg Reykjavíkur í dag í tilefni af Kvennaári. Árið 1975 lögðu konur niður störf til að krefjast jafnréttis og nú, fimmtíu árum síðar, á að endurtaka leikinn. Dagskrá fer fram að því tilefni víðsvegar um um landið, en stærsti viðburðurinn verður í höfuðborginni þar sem lögregla verður með öfluga öryggisgæslu. Götulokanir verða í gildi miðsvæðis þar til síðdegis í dag sem mun meðal annars hafa áhrif á ferðir Strætó. Innlent 24.10.2025 06:00
Flugumferðarstjórar aflýsa vinnustöðvunum á morgun og laugardag Flugumferðarstjórar hafa aflýst fyrirhuguðum vinnustöðvunum á morgun og laugardag. Fundi þeirra með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins var slitið um klukkan 22:20 í kvöld og nýr boðaður í fyrramálið. Innlent 23.10.2025 22:33