Fréttir

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. 

Veður

Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kveðst hafa áhyggjur af því að áhrifamenn í íslensku samfélagi séu orðnir „Rússagælur“ og bendir í því samhengi á Miðflokksmenn og Hannes Hólmstein Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor og Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta.

Innlent

Fleiri for­eldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaða­bótum

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Vinnumálastofnun vekja athygli á því að foreldrar sem fóru í fæðingarorlof 2022 til 2025 og störfuðu í öðru EES-ríki geti átt rétt á skaðabótum. Tilefni tilkynningar er dómur Hæstaréttar frá því í september þar sem ríkinu var gert að greiða íslenskum lækni skaðabætur vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Innlent

Flúði tára­gas lög­reglu í Nice

Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. 

Innlent

Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag

Að minnsta kosti tólf hundruð voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum og óeirðum víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Forsætisráðherra Frakklands segir að 150 lögreglumenn hafi slasast í óeirðunum. Íslendingur þurfti að flýja táragas lögreglunnar í Nice. 

Innlent

„Ég elska Obbu“

Formaður Viðreisnar segist ætla að taka ummæli Jóns Gnarr um forystuleysi innan flokksins til umhugsunar. Það sé þó ósatt að það andi köldu milli hennar og dómsmálaráðherra. Það sé högg fyrir þingflokkinn að missa Jón. 

Innlent

Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali

Páll Magnússon tekur á móti góðum gestum í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst að vanda klukkan 10 og stendur til 12. Þar verður að finna ítarlegt viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar. Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan eða í sjónvarpi á Sýn.

Innlent

Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París

Að minnsta kosti 1.200 voru handtekin í gær og í nótt í mótmælum stúdenta víða um Frakkland. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull. Í frétt BBC segir að talið sé að 550 þúsund manns hafi tekið þátt.  Sébastien Lecornu forsætisráðherra sagði að 150 lögreglumenn hefðu slasast í óeirðunum.

Erlent

Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum

Gul skriðuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Strandir, Norðanverða Vestfirði og Sunnanverða Vestfirði en þar er mestu uppsafnaðri úrkomunni spáð. Tvær lægðir áttu að fara yfir landið um helgina, sú fyrri í gær og sú seinni í dag. Ekki er talin hætta í byggð en skriðuföll geta náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum.

Veður

Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum

Í dag er spáð sunnan og suðvestan stormi og eru líkur á mikilli ölduhæð nærri ströndum sunnan og vestan til á landinu. Gular viðvaranir eru ýmist í gildi eða taka gildi síðar í dag. Varað er við vegalokunum eftir hádegi á milli Hafnar og Reyðarfjarðar. 

Veður

Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum

Mannkynið hefur bæði þekkinguna og tólin til þess að kveða loftslagsvandann í kútinn en eitt stærsta verkefnið er að brjóta á bak aftur popúlískt andóf gegn aðgerðum, að mati eins af fremstu loftslagsvísindamönnum í heimi. Einangrunarhyggja og skammsýni stefni árangri í baráttunni í hættu.

Innlent

Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka

Ísraelskir landtökumenn réðust í dag á hóp evrópskra erindreka á Vesturbakkanum í Palestínu. Belgísk stjórnvöld og Ísraelsher fordæma árásina en ísraelska forsætisráðuneytið dregur frásögnina í efa.

Erlent

Biður Jón af­sökunar

Grímur Grímsson, þingmaður VIðreisnar, biður kollega sinn Jón Gnarr afsökunar á „klaufalegum“ svörum sínum í útvarpsþætti í morgun þar sem hann sagði þingnefnd sem Jón færi fyrir ekki hafa fundað mikið að undanförnu. Nefndin hætti störfum í júní.

Innlent

„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“

Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir áríðandi að fólk missi ekki móðinn í mannréttindabaráttu. Hann segir nauðsynlegt að ná böndum á þau 60 átök sem geisa víða um heim. Einræðisherrar heimsins vilji láta fólki líða eins og það sé hjálparvana og valdalaust en það sé ekki þannig. Hann segir að bregðast verði við bakslagi í mannréttindum og óttast verulega þróun gervigreindar. 

Innlent

Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 

Innlent

Lög­reglan skarst í leikinn á mót­mælum í Kaup­manna­höfn

Danska lögreglan handtók í dag átta manns í tengslum við mótmæli víða um Kaupmannahöfn. Annars vegar hélt hægrisinnaða grasrótarhreyfingin „Danska þjóðin“ mótmæli þar sem farið var fram á fjöldabrottvísanir. Hins vegar héldu samtökin Mino Danmark, baráttusamtök fyrir innflytjendur, auk fleiri samtaka gagnmótmæli undir yfirskriftinni „Nei við endurflutningum - mótmæli gegn rasisma“. Stimpingar urðu milli fylkinga að mótmælunum loknum.

Erlent

Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa.

Innlent

Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma

Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar varar við stefnuleysi í uppbyggingu gagnavera. Það verði að vera skýrt hvaða gögn gagnaver á Íslandi geymi og hvort að gögn sem séu Íslendingum samfélagslega mikilvæg séu. Björg Eva segir í aðsendri grein náttúru Íslands eiga betra skilið en „stefnulausa uppbyggingu orkufrekasta iðnaðar nútímans“.

Innlent

Vara við „perra­gler­augum“

Evrópska persónuverndarráðið hefur gefið út yfirlýsingu um þær áskoranir sem notkun snjallgleraugna hafa í för með sér fyrir persónuvernd. Gleraugun verða sívinsælli víða um heim og eru gjarnan kölluð „perrugleraugu“ þar sem fólk notar þau í að taka fólk myndbönd af fólki á götum úti án þeirra vitundar og birta á netinu.

Innlent

Þyrlan kölluð út vegna slyss á há­lendinu

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gær að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Þeim hafði þá borist tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. 

Innlent

Kannast ekki við lýsingar Jóns

Dómsmálaráðherra segist ekki kannast við það að samband hennar og utanríkisráðherra sé stirt, líkt og Jón Gnarr, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, hélt fram í gær. Það sé áfall fyrir flokkinn og ríkisstjórnina að hann kjósi að ganga úr þingflokknum. 

Innlent